svaka fín jól.. góður matur, allir í voða góðu skapi.. fullt af fínum gjöfum.. fékk átta bækur!! held það sé met.. :) vona að allir hafi það gott, séu saddir og sælir!
eru aaaalveg að koma.. þetta er bara ekki fyndið! en ég er næstum búin með allar jólagjafirnar.. vantar hálfa gjöf handa mömmunni.. svo langar mig að gefa bróður mínum og mágkonu eitthvað en þau banna mér það.. :( fýlupúkar!!
ég er í fríi öll jólin!! engin vinna! er að vinna í dag og á morgun og svo fer ég í frí til 4 janúar!! leti, leti, leti!!
mílanó var stuð!! gaman að sjá ergluna.. með mega sammara yfir að trufla hana við lærdóminn en erglan mín er snillingur og brillerar þrátt fyrir smá truflun.. náði að versla smá en engan veginn nóg.. tókst bara að redda 3 af gazillion jólagjöfum.. ætlaði líka að kaupa mér alveg ógó mikið af fötum en það gekk ekki alveg upp heldur.. held ég hafi eytt meiri pening á flugvellinum í london á leiðinni heim heldur en í mílanó.. en þetta var gaman.. pizzur og rauðvín og lélegir brandarar.. en jesús minn almáttugur hvað ferðin á milli er vibbaleg.. við erum að tala um hálfan sólarhring í flugvél og rútu og setu á óþægilegum flugvallasætum.. my butt hurts!! vorkenni stelpunum dááááldið mikið! þær gera þetta oft á ári.. eugh!!!