þriðjudagur, október 30, 2007

dagur dauðans...

ég vaknaði alveg viðbjóðslega snemma í morgun og fór niðrí borgartún og plantaði mér í röðina á dekkjaverkstæðið.. röð er samt eiginlega ekki orðið sem lýsir þessu.. þetta var fokkin geðveiki og ég geri þetta aldrei aftur.. ég beið í tvo helvítis tíma í röð.. það voru ansi margir gáfaðir og gáfust upp, annars sæti ég líklega enn þarna.. svo borgaði ég fimmþúsundkall fyrir að biðina og kortersvinnu... ég er svo að fara að hringja í óla frænda og grátbiðja hann um að kaupa umfelgunardraslið og svo læri ég bara að gera þetta sjálf... minna mál kannski að kaupa bara felgur en mig langar samt smá í svona vél... :)

ég er háð scrabble!! ég veit, ég veit.. hef heyrt það ansi oft, ég er nörd!! en ég er ekkert ein um það..
í gær ætluðum við ranka að spila scrabble á netinu en það var bilað.. þannig að mín fór niðrí bæ, í eymundsson og keypti scrabble!!! og fór svo til rönku að spila.. ég geri mér alveg grein fyrir því hvað þetta er insane.. óþarfi að benda á það!!

frí frí frí frí!!! það er vetrarfrí hjá mér fimmtudag, föstudag og mánudag... sem er svoooooo gott þar sem ég er alveg uppgefin.... þarf að sofa rosa mikið.. og svo er alveg planið að drekka rosa mikið... og læra rosa mikið... veit ekki alveg með röðina á þessu.... en ég á að skila ritgerð 13. nóv þannig að hugsanlega þarf ég að setja læriríið efst á listann.. :( áhrif skilnaðar á börn og fjölskyldutengsl.. hljómar það ekki spennandi viðfangsefni?? langar einhvern?? ég á bjór... ;)

laugardagur, október 13, 2007

...






fimmtudagur, október 04, 2007

one for my homies...

hvernig er lífið að fara með ykkur? lífið mitt er frekar gott bara svona fyrir utan það að ég er aaaaalltaaaaf þreytt þar sem ég geri ekki annað en að vinna eða læra.. mig langar alveg voða mikið að taka alveg heilan dag, bara í chill.. sofa, horfa á video, lesa eitthvað annað en skólabækur, sofa meira.. hugsa ekki neitt!! ahh.. that would be nice... not gonna happen any time soon..
er að fara í lotu.. nenni ekki... vil sofa.... ég vil líka fara til útlanda.. ég vil fara til erlanna minna.. vil gera eitthvað annað en það sem ég á og þarf að gera... :/