mánudagur, júlí 23, 2007

24 ára

ég á afmæli á morgun.. eeeeldgömul.. hræðilegt..
mamma er engan veginn með afmælisgjafareglur á hreinu.. hún sagði mér hvað hún ætlaði að gefa mér.. ég semsagt gaf henni svona dekurkort í nordica spa í jólagjöf (hún hefur ekki notað það enn) og hún semsagt gaf mér eins og pantaði tíma fyrir okkur báðar á miðvikudaginn.. það verður ábyggilega gegt næs... nudd og solis.. vona allavega að ég komist.. er nebbla orðin dáldið slöpp.. :(
hve mikil klassík er það samt að ég verð lasin um leið og sumarfríið mitt byrjar.. svosem líklega betra að nota sumarfríið í það heldur en að missa úr vinnu en andskotinn sjálfur.. ekki skemmtilegt..

erla maría er komin til landsins.. ég fór næstum því að grenja þegar ég hitti hana.. við fórum síðan í heimsókn til erlu bjarkar og guðna á föstudaginn og það var móment þar sem ég fór næstum því aftur að grenja.. af því að bráðum verða báðar erlurnar mínar í útlöndum.. hryllileg tilhugsun!! ég verð að gjöra svo vel að fá mér almennilegt net svo að ég geti talað við þær.. svo verður maður að finna sér tíma til að kíkja í heimsókn!! íbbs, það gæti orðið dáldið tricky þar sem ég verð nottla bæði í vinnu og skóla.. loturnar eru meira að segja um helgar.. bjakk!!

mánudagur, júlí 16, 2007

mínus 4 dagar....

í sumarfríið mitt.. þriggja vikna sumarfríið mitt.. guess who's doing nothing for three whole weeks... OOoh.. ME!?!?! let it be me.. MeMeMeMEEE... Pick Me!! :) Yay, it's me!! *doing a little dance* (not really but you get the point) Nei, ég er ekki completely búin að missa vitið.. gæti hugsanlega verið með smá sólsting en...
jamm, já og jibbídúbíjei.. ég er semsagt að fara í sumarfrí á föstudag ef einhver gat ekki reiknað út 'mínus fjórir dagar'.. jafnvel þótt mér líki afar vel í vinnunni minni þá hlakka ég alveg gígantískt til að fara í FRÍ!!!

fuglur hatar mig!! :( hann var sko alveg svakalega óþekkur og neitaði að fara inn í búrið sitt.. og ég vildi ekki hafa hann lausan þar sem ranka var búin að tala um að ef hann væri laus á nóttunni þá ætti hann það til að koma og setjast á mann og mar gæti kannski kramið hann í svefni.. svo ég var alveg dauðhrædd við að vera inní herberginu mínu yfir nóttina, tók allt draslið mitt og flutti mig um herbergi.. slökkti inni hjá mér, hallaði hurðinni og bara skildi fuglinn eftir.. honum líkaði það ekki.. eftir smá stund fór hann að krafsa í hurðina, reyna að opna hana aðeins meira, býst ég við, svo að hann kæmist fram.. ég opnaði, hann flaug til mín og mér tókst að setja hann inn í búrið.. ekki sáttur gaur!! ég skammaði hann og svo fékk fuglur ekkert að fara út úr búrinu daginn eftir þetta fíaskó.. og hann haaaaatar mig!! það er bara kamburinn upp í loftið og hvæs og læti þegar ég kem nálægt honum.. *sniff.. sniff*

fimmtudagur, júlí 12, 2007

fuglur, harry potter ofl..

* fuglur er í pössun hjá mér.. litla barnið hennar rönku ætlar að vera hjá mér á meðan mamman hans er í útlöndum.. hann var pínu tense fyrsta daginn en nú er hann hress og kátur og farinn að kúka í rúmið mitt.. ;/ mega cute samt.. ég var að borða og hann kom bara og stal matnum mínum.. ég ætlaði að fara að bíta í og þá kom fuglinn bara og byrjaði að borða brauðið mitt.. hann kann enga mannasiði.. svo fór hann og kúkaði á liverpool sængina mína.. veit ekki hvort hann var að reyna að tjá sig eitthvað með því eða... öss... eníveis, hann er svo góður og sætur.. honum virðist samt ekki líka við móður mína.. hvæsir bara þegar hún kemur nálægt honum.. tíhíhí...

* frænka mín kom í bæinn áðan og við skelltum okkur á harry potter í bíó.. vonbrigði!!!! mér finnst harry potter brill og hlakkaði til að sjá þessa mynd.. stóðst engan veginn væntingar.. það gerðist eila ekkert.. þetta var svona dáldið eins og fyrsti þátturinn í einhverri sjónvarpsseríu þar sem er bara verið að kynna persónurnar og tengsl þeirra á milli og nákvæmlega ekkert gerist.. sami blær einhvern veginn yfir þessu.. það var fullt af stöffi úr bókinni sem ég var alltaf að bíða eftir að kæmi í myndinni but it never did.. mjög sökkí.. :(

* vinnan er alveg að verða búin.. ein vika og þá á allt að vera horfið af svæðinu.. allir kofar farnir heim eða rifnir niður.. pínu sorglegt..

* erla maría kemur heim í næstu viku.. (lúðrablástur, hróp, köll og bara almenn good old fashion múgæsing)

* á morgun er föstudagurinn þrettándi og ég er að vinna með timbur, hamra, nagla og sagir!! þetta getur bara ekki orðið fallegt!!!!!

þriðjudagur, júlí 10, 2007

vissuði.......

að naglar eru stórhættulegir.. tveir slíkir réðust á mig í dag.. i did absolutely nothing to instigate this vicious attack!! my lawyer advices me to sue!! annar naglinn réðst á höndina mína og hinn á fótinn.. ég veit ekki hvaða snillingur ákvað að það væri sniðugt að láta þessar slysagildrur í hendurnar á 8 til 12 ára börnum.. geez... en það er alveg ferlega vont að stíga á nagla ef þið vissuð það ekki..
fór upp í sveit á laugardaginn.. fólkið sem var nýkomið úr tveggja vikna portúgal ferð var frekar takmarkað ánægt að sjá mig og mega tan-ið mitt.. múhahhaha.. skil engan veginn hvernig þeim tókst að vera í tvær vikur á sólarströnd og ná nákvæmlega engum lit!! glow in the dark hvít!!! annars er "mega tan-ið" mitt algjör brandari.. bóndabrúnka dauðans!! handleggirnir pínu brúnir, andlitið, hálsinn og niður á bringu... það er eins og að ég sé með smekk.. í fullri alvöru..

nýji frændi minn er svoo sætur..




















veit ekki alveg hvernig stendur á því að krakkinn er svona tanaður! ;)

mánudagur, júlí 02, 2007

rigning = góð!!

það er búið að vera svo svakalega heitt og þurrt undanfarið að ég actually tók smá dansspor þegar ég uppgötvaði að það var rigning úti í dag.. afar hressandi.. hitinn var alveg að fara með mig.. en ég er orðin mega brún.. miðað við hvað ég er venjulega hvít!! rosa fín bóndabrúnka í gangi.. ;) finnst þetta reyndar frekar óþægilegt.. bregður smá þegar ég lít í spegil..
ég elska vinnuna mína, f.y.i.. svoooo gaman.. þetta er auðvitað enginn dans á rósum alltaf.. ég er búin að berja ansi oft á fingurna mína og ná mér í um það bil átján milljón flísar.. en það er bara stemmning.. hinn leiðbeinandinn, andrés, er fínn gaur og krakkarnir eru frábærir.. þau eru orðin svo sjálfbjarga og klár að við andrés höfum stundum frekar takmarkað að gera.. :/ þau miskunna sig yfir okkur og leyfa okkur af og til að hjálpa sér aðeins, saga smá og svona.. :)
helgin er búin að vera rosa næs.. við ranka fórum í kringluna og átum á okkur gat á rikka chan.. ég borðaði svona sirka einn sjöunda af því sem var á disknum og var alveg pakk.. keyptum svo stöff fyrir kvöldið, pikkuðum upp fólk og fórum heim til rönku.. þetta var rosa fínt kvöld.. eldaður góður matur.. drykkjarföng við allra hæfi.. misgáfulegar samræður.. :) very nice!! fór núna um áttaleytið að sækja bílinn minn heim til rönku.. hún var enn sofandi.. sem er það sem ég ætla að gera núna!!