laugardagur, júní 23, 2007

ég á nýjan frænda.. :)

sigga frænka eignaðist strák í fyrradag... fæddist á afmælisdegi ömmu sinnar.. alveg eins og ég.. hann fæddist líka dáldið fyrir tímann eins og yours truly.. hann var samt 12 merkur á meðan ég var bara 6.. ég er alveg að springa úr spenningi að hitta nýjasta meðlim fjölskyldunnar en ég ætla að bíða í nokkra daga.. fæðingin sjálf gekk víst rosa vel en það var eitthvað vesen eftirá og sigga missti 3 LÍTRA af blóði eða eikkað álíka.. sjæt!! my children will not be born from my womb thank you very much!! ættleiðing, fólk!!

mánudagur, júní 11, 2007

fyrsti dagurinn..

smíðavöllurinn byrjaður and boy am I exhausted.. og brunnin.. þegar ég fór út í morgun var engan veginn útlit fyrir sól þannig að mér datt ekki í hug að taka sólarvörn með.. tók regnjakka, leit meira þannig út.. þannig að ég er eldrauð og sár.. og með tvo slasaða putta.. reif smá stykki úr vinstri þumalputtanum og buffaði vinstri bendiputtann.. man ekki hvað official heitið á umtöluðum fingri er þannig að hann er bara bendiputti.. all in favor say 'aye'...
8 dagar í útlandaferð.. vúppídú.. nei, ég er ekki að fara neitt.. en mamma er að fara í tvær vikur til portúgal.. freedom!! don't get me wrong.. mér þykir voooðalega vænt um mömmuna mína, fínt að hafa hana á meðan hún er ekkert voða mikið að angra mig.. sem hún gerir nú svosem ekki mikið.. hún á bara alveg svaaakalega erfitt að venja sig á það að ég sé ekki fimm ára.. jafnvel þótt hún hafi haft tæp 20 ár til að venja sig við þá tilhugsun.. en já, eins og það er ágætt að hafa gömlu konuna stundum, þá eeeeeeelska ég að vera ein.. ekki eins og ég hagi mér eitthvað öðruvísi í rauninni.. syng kannski aðeins hærra.. geng frekar um á nærbuxunum máski.. veit ekki afhverju það er svona gott að vera einn í heiminum..

mánudagur, júní 04, 2007

brrrr.. hrollur... brrr....

þetta var alveg svakalegur dagur.. kalt kalt kalt... vaknaði auðvitað ískyggilega snemma.. bjakkidí.. fór á námskeið fyrir vinnuna.. úti við sjóinn í skerjafirðinum.. rosalegt rok og rigning á köflum og ég var að smíða kofa.. það var svoooooo kalt.. voða gaman en þegar ég kom heim skipti ég yfir í náttbuxur, ullarsokka og þykka peysu og skreið undir sæng... eftir klukkutíma var ég enn skjálfandi úr kulda... hressandi!! það verður hreinlega kraftaverk ef ég verð ekki veik í fyrramálið.. kláruðum samt næstum því kofann..
sakna krakkanna.. :( síðasti dagurinn er á morgun og ég missi líklega af honum.. þarf að klára kofann.. krossa fingurna að við verðum búin snemma svo ég geti farið og knúsað ormana mína.. nema hvað það er mjög misjafnt hvað fólk er langt komið með kofana og 'það fer enginn fyrr en allir eru búnir'.. :/