útlandið var æði.. hótelið var gegt næs, veðrið var alveg fáránlega gott... akdeniz er ekki lengur til en það er samt basically eins staður þarna en maturinn er ekki alveg jafn góður.. svo var enginn róló búðingur og enginn duftsleikjó.. sorry, stella mín!! en já, annars var allt æðislegt.. nema hvað rúmið gat varla talist rúm.. gegt mjótt.. og rúmið mitt hérna heima er 160.. fyrstu nóttina datt ég næstum framúr, sló handleggnum í náttborðið og fékk alveg svaka fínan marblett og smá sár.. ég verslaði alveg slatta.. keypti mér myndavél og þverflautu ásamt nokkrum flíkum.. tollurinn tók næstum af mér flautuna af því að ég týndi kvittunninni og þeir voru ekki alveg að trúa því að hún hefði kostað 17 þús. kall.. arses! ég ákvað líka að vera gegt góð og kaupa sitthvort kartonið handa magga og sigrúnu og grétar keypti tvö handa tengdó.. tollurinn tók annað kartonið af okkur báðum OG lét okkur borga 10 þús. kall í sekt.. ekki vissi ég að það mætti bara vera með eitt karton.. dumbass fríhöfnin að selja manni tvö og svo er það tekið af manni og maður látinn borga sekt og sakaður um 'smygl frá bretlandi'.. svakalega vel tekið á móti manni þegar mar kemur heim.. ;) skemmdi pínulítið annars fína ferð..
flugið út var annars frekar sökkí.. grétar er eitthvað yfir 190 cm hár þannig að það er ekkert mega mikið pláss fyrir hann í svona flugvélasætum.. en hann var eikkað að reyna að koma sér fyrir og rak hnén aðeins í sætið fyrir framan.. snéri gamla ameríska kellingarbeyglan sér við 'hættu að sparka í sætið'.. uu, fyrirgefðu.. grétar greyið reyndi að draga sig allan saman en um leið og hann fór aðeins að slaka á aftur rak hann sig aftur í.. ég sá það alveg og það var ekki neitt.. hvernig hún fann fyrir því skil ég ekki.. spurning hvort þessi kelling hafi verið fyrirmyndin af 'prinsessan á bauninni'.. nógu var hún gömul.. allavega 'viltu hætta að sparka í sætið.. ef það gerist einu sinn enn þá kalla ég á flugfreyjuna og kvarta'.. ertu að grínast?? við ákváðum bara að vera á undan og þegar flugfreyjan labbaði framhjá þá spurði ég hvort það væri einhver möguleiki að færa annaðhvort okkur eða hana.. híhíhí.. útskýrði svo málið fyrir henni.. það væri frekar skítt að geta ekki slakað aðeins á, þurfa alltaf að vera að passa sig að snerta ekki sætið.. það var því miður allt fullt og ekkert hægt að gera.. 'hún kvartar þá bara..' sagði grétari að hafa engar áhyggjur af þessu en hann var samt voða mikið að passa sig allan tímann og ég held að það hafi ekkert farið alltof vel um hann..
já, semsagt.. fyrir utan flugið út og móttökurnar heima þá var þetta brill!!
þetta er andskotans nóg.. ble!