lousy way to spend a saturday night..
ég er að taka tennur.. reyndar bara eina tönn.. síðasti helvítis ljóti endajaxlinn er að bögga mig.. samt er hann leeeeengst uppi.. eða var það allavega síðast þegar ég fór til tannlæknis sem var fyrir tæpum tveim vikum.. og tveim vikum þar á undan var ég líka hjá tannsa.. hann spurði líka síðast þegar ég kom hvort að mér fyndist bara svona gaman þarna.. ójá, jibbí jei.. ég er reyndar ekkert með neina tannlæknafóbíu eins og svo margir.. mér finnst bara gott að hafa tennurnar mínar í lagi, nógu miklum peningum hefur verið eytt í að rétta þær, eins gott að ég passi uppá að þær verði þarna í nokkur ár í viðbót..
mig dreymir líka þessar blessuðu tennur.. í draumunum eru þær alltaf að brotna.. eða bara detta úr og ég reyni að troða þeim aftur á sinn stað.. stundum eru þær bara lausar og stundum molna þær í billjón litla hluta sem ég þarf svo að tína úr gómnum og tungunni og það er blóð út um allt.. skemmtilegt ekki satt? þetta eru ekki alveg uppáhaldsdraumarnir mínir..
en mig dreymir líka oft verulega furðulega hluti.. stiga sem enda eila aldrei.. og hverfa á köflum.. og mjókka þannig að það er varla hægt að koma tánum fyrir á þrepinu.. gegt brattir og skakkir og bara weird ass stigar.. og í þessi fáu skipti sem ég kemst á stigapallinn þá er það vitlaus hæð eða eitthvað.. blah..
ég ætla að fara og umturna íbúðinni í leit að verkjatöflum.. og semja svo smá bréf sem ég dreifi í póstkassana hjá nágrönnunum þar sem ég biðst afsökunar á að hafa vakið þá með látunum sem fylgdu leitinni að verkjatöflunum! ef ég finn engin verkjalyf þá þarf ég að skrifa bréf þar sem ég biðst afsökunar á að hafa haldið fyrir þeim vöku með öskrum alla nóttina..
btw, hvaða vitleysingur fer ekki og kaupir verkjalyf þegar hann sér að það er bara EIN íbúfen eftir í glasinu?