mánudagur, júlí 02, 2007

rigning = góð!!

það er búið að vera svo svakalega heitt og þurrt undanfarið að ég actually tók smá dansspor þegar ég uppgötvaði að það var rigning úti í dag.. afar hressandi.. hitinn var alveg að fara með mig.. en ég er orðin mega brún.. miðað við hvað ég er venjulega hvít!! rosa fín bóndabrúnka í gangi.. ;) finnst þetta reyndar frekar óþægilegt.. bregður smá þegar ég lít í spegil..
ég elska vinnuna mína, f.y.i.. svoooo gaman.. þetta er auðvitað enginn dans á rósum alltaf.. ég er búin að berja ansi oft á fingurna mína og ná mér í um það bil átján milljón flísar.. en það er bara stemmning.. hinn leiðbeinandinn, andrés, er fínn gaur og krakkarnir eru frábærir.. þau eru orðin svo sjálfbjarga og klár að við andrés höfum stundum frekar takmarkað að gera.. :/ þau miskunna sig yfir okkur og leyfa okkur af og til að hjálpa sér aðeins, saga smá og svona.. :)
helgin er búin að vera rosa næs.. við ranka fórum í kringluna og átum á okkur gat á rikka chan.. ég borðaði svona sirka einn sjöunda af því sem var á disknum og var alveg pakk.. keyptum svo stöff fyrir kvöldið, pikkuðum upp fólk og fórum heim til rönku.. þetta var rosa fínt kvöld.. eldaður góður matur.. drykkjarföng við allra hæfi.. misgáfulegar samræður.. :) very nice!! fór núna um áttaleytið að sækja bílinn minn heim til rönku.. hún var enn sofandi.. sem er það sem ég ætla að gera núna!!

3 Comments:

Anonymous stellagella =) said...

Já það vantar smá klassískt íslenskt sumarveður: rok&rigning!

Ég er að reyna að læra og það er sko EKKI að ganga í sólinni!!! ;p

2/7/07 3:32 PM  
Anonymous ergla said...

hey, mig langar svo að byggja tréhús í sumar....... éra deyja!!
eða kannski bara fuglahús..... má ég koma í heimsókn og gera það í vinnunnu hjá þér?

3/7/07 10:18 AM  
Blogger Elfa said...

uuu.. það er dáldið erfitt þar sem þú kemur heim 19. júlí og síðasti dagurinn á smíðavellinum er 20. júlí!! en við látum pabba þinn bara redda timbri og byggjum kofa í garðinum hjá þér!! ;) ég fer nottla í þriggja vikna sumarfrí þegar smíðadótið er búið!! get byggt alveg mega fínan kofa handa þér!!

3/7/07 4:32 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim