mánudagur, júlí 23, 2007

24 ára

ég á afmæli á morgun.. eeeeldgömul.. hræðilegt..
mamma er engan veginn með afmælisgjafareglur á hreinu.. hún sagði mér hvað hún ætlaði að gefa mér.. ég semsagt gaf henni svona dekurkort í nordica spa í jólagjöf (hún hefur ekki notað það enn) og hún semsagt gaf mér eins og pantaði tíma fyrir okkur báðar á miðvikudaginn.. það verður ábyggilega gegt næs... nudd og solis.. vona allavega að ég komist.. er nebbla orðin dáldið slöpp.. :(
hve mikil klassík er það samt að ég verð lasin um leið og sumarfríið mitt byrjar.. svosem líklega betra að nota sumarfríið í það heldur en að missa úr vinnu en andskotinn sjálfur.. ekki skemmtilegt..

erla maría er komin til landsins.. ég fór næstum því að grenja þegar ég hitti hana.. við fórum síðan í heimsókn til erlu bjarkar og guðna á föstudaginn og það var móment þar sem ég fór næstum því aftur að grenja.. af því að bráðum verða báðar erlurnar mínar í útlöndum.. hryllileg tilhugsun!! ég verð að gjöra svo vel að fá mér almennilegt net svo að ég geti talað við þær.. svo verður maður að finna sér tíma til að kíkja í heimsókn!! íbbs, það gæti orðið dáldið tricky þar sem ég verð nottla bæði í vinnu og skóla.. loturnar eru meira að segja um helgar.. bjakk!!

1 Comments:

Anonymous stella afmælisgella said...

Vonaðú hafir fengið smessið frá mér - en ég segi bara aftur TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!!! =D

25/7/07 12:35 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim