mánudagur, júní 04, 2007

brrrr.. hrollur... brrr....

þetta var alveg svakalegur dagur.. kalt kalt kalt... vaknaði auðvitað ískyggilega snemma.. bjakkidí.. fór á námskeið fyrir vinnuna.. úti við sjóinn í skerjafirðinum.. rosalegt rok og rigning á köflum og ég var að smíða kofa.. það var svoooooo kalt.. voða gaman en þegar ég kom heim skipti ég yfir í náttbuxur, ullarsokka og þykka peysu og skreið undir sæng... eftir klukkutíma var ég enn skjálfandi úr kulda... hressandi!! það verður hreinlega kraftaverk ef ég verð ekki veik í fyrramálið.. kláruðum samt næstum því kofann..
sakna krakkanna.. :( síðasti dagurinn er á morgun og ég missi líklega af honum.. þarf að klára kofann.. krossa fingurna að við verðum búin snemma svo ég geti farið og knúsað ormana mína.. nema hvað það er mjög misjafnt hvað fólk er langt komið með kofana og 'það fer enginn fyrr en allir eru búnir'.. :/

1 Comments:

Anonymous stellagella said...

eee var ekki hugmyndin ad KRAKKARNIR smíðuðu kofana ;)

...eða misskildi ég aðeins hlutverk þitt á smíðavellinum tíhíhí ;p

6/6/07 9:29 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim