mánudagur, maí 21, 2007

hædíhó fellas...

afhverju tæmist heilinn á mér alltaf um leið og ég sign-a mig inn á blogger.. alveg óþolandi.. man aldrei jack af því sem mér dettur í hug að skrifa hérna..

í sumar verð ég að vinna á smíðavelli.. stuð!! var á smíðó í tvær eða þrjár vikur í fyrra.. það var svakalegt.. ég negldi svona sirka átján þúsund sinnum á fingurnar.. fékk sirka trilljón flísar, þar á meðal eina sem orsakaði frekar ljóta ígerð.. very nice.. ég labbaði utan í brotið gler.. yaddi yaddi ya.. mér tókst meira að segja að saga í fótinn á mér... afrek!! hvernig ætli þetta verði núna.. svo fer ég í sumarfrí 20. júlí.. heilar þrjár vikur thank you very much.. svo held ég að ég eyði einni viku á róló áður en vetrarstarfið byrjar.. og ég held að ég drulli mér í skóla.. reyni að klára helvítis stúdentinn.. búin að prófa dagskóla, kvöldskóla og sumarskóla (eða.. sumarnámskeið kannski meira).. nú er komið að fjarnámi..

bráðum verða báðar erlurnar mínar í útlöndum.. tragic.. erla maría í mílanó að læra animation og illustration.. og svo var hún erla björk að komast inn í london school of fashion.. minnir allavega að það sé nafnið á skólanum.. voðalega lítið hægt að treysta á mitt minni samt.. eníveis.. ég er engan veginn sátt... auðvitað alveg viðbjóðslega ánægð fyrir erlu bjarkar hönd en veeeeeeerulega sorgmædd fyrir mína.. þær eru báðar búnar með framhaldsskólann (erla björk meira að segja tvo) og eru í eða að fara í eikkað gegt kúl nám... ég er ekki einu sinni búin með stærðfræði 103.. bjakk.. já, ég vorkenni sjálfri mér alveg svakalega.. má það alveg.. mamma segir það..

3 Comments:

Anonymous ergla said...

mamma er góð.... en ég var að teikna til 4 í nótt og vöknuð klukkan 9... þarf að teikna meir og hlaupa í skólann. öfund? ;)

23/5/07 8:22 AM  
Blogger Elfa said...

uuuu.. kannski ekkert svo voðalega mikið, nei.. *frown*

23/5/07 12:49 PM  
Blogger Elfa said...

Þessi færsla hefur verið fjarlægð af höfundinum.

23/5/07 12:49 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim