sunnudagur, febrúar 25, 2007

proof of life.. not wit..

afsakið.. það kemur kannski ekkert á óvart en ég er búin að vera veik!! hef hreinlega ekki haft orku í að blogga.. ég er samt öll að koma til.. virðist vera staðráðin í að setja heimsmet í hóstaköstum.. ég er alltaf svo dauðhrædd um að eitthvað springi í hausnum á mér á meðan á umræddum hóstaköstum stendur.. þegar ég æli, hvort sem það er af völdum lyfjanna eða venjulegrar ælupestar, þá er svo rosalegur kraftur í því eitthvað að blóðfrumur springa í andlitinu á mér og ég fæ hálfgerða marbletti í kringum augu og munn.. þið vilduð vita þetta er það ekki? ;) allavega, ég býst alltaf við því að eitthvað hræðilegt gerist í hausnum á mér.. afar óþægilegar pælingar..
ég er verulega mikið farin að halda að heimurinn, eins og hann leggur sig, hati mig!! blessaðir mennirnir sem eru að gera upp blokkina ýta undir þá kenningu.. stundum sér maður þá ekki í langan tíma og ekkert gerist.. svo verður elfa litla veik... lítill fugl lætur þá vita og um leið eru þeir mættir á svæðið með bora og háþrýstidælur og ég veit ekki hvað.. ef það framkvæmir hávaða, þá eru þeir með það!! einhvern tímann þegar elfa litla var lasin þá ákváðu þessir sendiboðar djöfulsins að fjarlægja glugga úr byggingunni.. brjóta upp helvítis steypuna í kringum alla helvítis gluggana.. elfa litla grét og grét og grét af því að hávaðinn ætlaði að sprengja blessað höfuðið hennar.. í þetta skiptið fannst þeim upplagt að fjarlægja algjörlega svalirnar á byggingunni með sama hætti.. ú, jibbí jei.. húsið nötraði.. mér er dauðans alvara, rúmið mitt færðist úr stað... og elfa litla grét og grét... langaði að fara út á svalir og öskra á þá að hætta þessu.. hugsanlega henda einhverju oddhvössu í áttina að þeim.. gallinn á þeirri áætlun var bara sá að ég var algjörlega raddlaus... OG HAFÐI ENGAR SVALIR!!! búhúhú.. mamma keypti handa mér eyrnatappa, sem hjálpaði aðeins... því miður bara hvað hávaðann varðaði.. húsið skalf samt allt og ég var hálf sjóveik.. óó, góðar stundir!!
veikindi mín hafa skemmt móður minni alveg rosalega.. sko.. ég lá víst alveg meðvitundarlaus þegar gamla konan kom að kíkja á mig og vildi endilega vita hvernig hita-status væri.. hún ákvað bara að stinga upp í mig mælinum þar sem ég var ekki alveg í ástandi til að gera það sjálf.. veit ekki alveg hvað var að gerast í hausnum á henni en hún hreinlega bara gleymdi mér og ákvað að fá sér labbitúr út í búð.. og fattaði þar að ég lá heima, enn með hitamælinn í kjaftinum.. þetta finnst henni alveg óskaplega fyndið.. *hristi haus* kæmi mér ekkert á óvart þótt hún væri að vakna á nóttunni, hlæjandi að þessu.. það er auðvelt að skemmta henni..

1 Comments:

Anonymous heimsk ljóska said...

haha, mér finnst hitamælirinn líka fyndinn sko!

held að elfa þurfi smá knús

*virtual hug*
*virtual pinch in the buttocks*
*virtual poke in the eyes* ... tihihi, langaði bara að hafa þetta seinasta með, sorry dúd!

25/2/07 7:39 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim