miðvikudagur, febrúar 14, 2007

fyrir reiða gaura!!

afsakið.. búið að vera mikið að gera.. en samt hefur ekkert gerst.. vinna, vinna, vinna.. náði mér í gubbara en er orðin hress.. eða.. svona semi hress.. með strengi í öllum líkamanum en hef þó náð hausnum upp úr fallegu rauðu ikea ruslatunnunni minni.. not so pretty anymore!!
fór í bíó á föstudag.. fyrsta skipti í laaaangan tíma.. held ég hafi bara ekki farið í bíó síðan x-men 3.. sem er vibba langt.. allavega man ég ekki eftir öðru.. en ég skellti mér semsagt í bíó með slatta af fólki.. fórum á perfume, story of a murderer.. mæli ekkert endilega með henni.. ekkert slæm mynd en enginn eðall heldur.. lesið bara bókina! hún ranka mín elskuleg fékk einmitt bókina lánaða hjá mér.. fyrir tveimur eða þremur árum!! keypti nýtt eintak um daginn og nei, það má enginn fá það lánað!! nema borga tryggingu eða eikkað!!
vá, er bíóferð the highlight of my life frá síðustu færslu?? lovely!!
nei, ég var með partí... staffadjamm! mikið drukkið.. mikið káfað á hinum ýmsu brjóstum.. myndir teknar af dauðum einstaklingum með bera rassa annarra einstaklinga í mikilli nálægð við höfuð umræddra dauðra einstaklinga... póker spilaður af mikilli alvöru.. fólk dautt frammi á stigagangi... bara svona ordinary partí!!! ég hef annars verið rosalega dugleg að rekast ekki á neinn nágranna minna undanfarið..

3 Comments:

Anonymous bara oggupons fúll gaur út af myndinni said...

hey, átti ég ekki að fá að sjá beru rassa myndirnar.... ér samt tiltölulega sáttur gaur!

14/2/07 9:32 PM  
Blogger Elfa said...

rólegur, oggupons fúli gaur... myndirnar koma!!

15/2/07 1:17 PM  
Anonymous Erla Björk said...

Já heyrðu gubbugella... er alveg sammála þér með myndina... Ég er mjög fúl að hafa verið svona spennt yfir einhverju jafn óspennandi...
En það er kaffi um helgina kannski?

15/2/07 9:21 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim