föstudagur, janúar 12, 2007

'fréttir'

jæja dömur mínar og herrar.. ég biðst afsökunar á lágri bloggtíðni og þeirri röskun sem það hefur haft á líf ykkar..
jóla'fríið' leið alveg asnalega hratt og ég vil leggja fram formlega kvörtun vegna þessa hallæris.. hvar leggur maður inn slíka kvörtun? anyone? ég var að vinna eins og usual.. voða gaman.. náði mér auddað í smá pest eftir jólin eins og hefð er í minni familíu.. ekki alveg jafn gaman.. þegar ég mætti til vinnu aftur eftir áramót var ég svaka hress og kát en það dofnaði fljótt.. hafði sko vaknað pínu aum í hnénu.. um tíu leytið var ég byrjuð að öskra af sársauka þegar ég hreyfði mig.. held að vinnufélagar mínir hafi ekki haft ánægju af félagsskap mínum þann daginn.. ég fór til læknis eftir vinnu sem taldi að ég hefði rifið eikkað.. lið-???.. man ekki hvað.. roooosa stuð.. ég veit að ég er fyrirferðamikil í svefni, alltaf að bylta mér eitthvað en ég gerði mér ekki grein fyrir því að það væri svo rosalegt að ég gæti 'rifið' eitthvað.. var vibba slæm og svo lagaðist það aðeins og nú er það aðeins búið að versna aftur en ég er samt göngufær.. er samt ekki að fara að labba esjuna á næstu dögum.. á að gefa þessu smá tíma og ef ég verð ekki tip-top eftir ca. tvær vikur eða eikkað þá þarf ég að fara í einhverjar rannsóknir.. wanna trade?
ég er annars bara að vinna og vinna.. svo var ég að átta mig á því að það er alveg vel overdue að fara að undirbúa sig fyrir prufu í leiklistina.. eeek!! ef þið eruð með góð ráð eða snilldar hugmyndir varðandi mónólógana og slíkt þá megið þið endilega bjalla í mig.. ég er nebbla alveg blank!!

4 Comments:

Anonymous Erla Björk said...

Ég get semsagt talist heppin að hafa gist í sófanum þessar nætur sem ég hef gist hjá þér...

13/1/07 12:21 PM  
Blogger Elfa said...

heppin er understatement!! ef þú hefðir krassað uppí hjá mér þá værir þú ábyggilega eineygða erla í dag..

15/1/07 12:29 PM  
Anonymous stella kvörtunargella said...

Sko ég vil koma á framfæri kvörtun, blogg einu sinni á tveggja vikna tímabili is just not flying dude... amk einu sinni í viku, lágmark!

Annars fer ég fram á að bloggleyfið þitt verði afturkallað ;p

18/1/07 12:26 PM  
Blogger Elfa said...

segir!!!!!!!!! þú bloggaðir síðast á ammilinu þínu!! bee-yatch!

18/1/07 1:20 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim