þriðjudagur, október 31, 2006

ólrætí then..

engin stemmari fyrir 'celeb' look-a-like heldur..

vigfús og þröstur eru farnir!! ég sakna þeirra.. þeir félagar eru semsagt tveir litlir sætir froskar sem vinnustaðurinn minn keypti.. og ekki gátum við skilið þá eina eftir yfir helgina þannig að ég tók þá með heim.. ég var alveg að spá í að 'týna' þeim svo ég þyrfti ekki að fara með þá aftur upp í vinnu.. :( ég verð bara að fara og kaupa mér froska.. en það er samt ekki eins *væl* þeir froskar verða ekkert eins og þröstur og vigfús.. btw. ég gaf þeim ekki nöfnin.. *hristi haus* ég vildi sko að þeir hétu kúkur og mygla (annar er brúnn og hinn er grænn) hehehehe.. neeeeeii, enginn stemmari fyrir því.. svo hefði nottla bara verið kúlast í heimi ef ég hefði fengið að skíra þá ahmed og dweezil.. það kom ekki til greina.. það var bara hlegið að mér.. þannig að ég ákvað að segja ekki upphátt næstu hugmynd mína sem var mc gusto og dead mike eða stab master arson.. mér hefði líklega bara verið hent út.. tjörguð og fiðruð og rekin úr bænum.. þessir fýlupúkar.. *puh* ég kaupi mér bara fullt af froskum og nota þessi fínu nöfn á þá! verst bara að stykkið kostar ca. 4000 kall og svo vantar líka búr undir þá.. æi!! þeir eru litlir.. nota bara sultukrukkur eða tupperware eða eikkað solis..

svo er það blessaður bíllinn.. elsku bestasti yndislegi bíllinn minn.. *andvarp* það lítur allt út fyrir að hann heiti markús.. *aaaaandvarp* markús er svosem ágætis nafn en ekki alveg nafn á bíl, skiljiði.. ég er að reyna að halda í vonina að þetta sé einhver pínu misskilningur.. language difficulties eða eitthvað slíkt.. *fingers crossed* ekki segja honum þetta samt.. hann þarf ekkert að vita.. óþarfi að særa greyið.. meina, ef hann heitir markús þá heitir hann það bara og ég verð að sætta mig við það.. bara að fá þetta á hreint!

það er svo vetrarfrí hjá mér frá fimmtudegi fram á mánudag.. er ekki bara málið að eyða þeim örfáu krónum, sem fara ekki í afborganir af bílnum og ýmislegt solis, í bjór og vitleysu.. veriði memm..

miðvikudagur, október 25, 2006

bara ég eða??

ég var að horfa á mynd og var alveg svakalega mikið ekki að ná því að jean claude van damme væri að leika í einhverju sem ekki snérist um *spark, spark, berj, kýl*.. fór svo aðeins að skoða þetta og þá var þetta auddað ekkert hann heldur michael massee.. þeir eru alveg asnalega líkir.. eða er það bara ég? michael massee er betri leikari án efa en þar sem ég hef aldrei séð mynd með jcvd þá get ég svosem ekki fullyrt það.. eða jú, ég fullyrði bara eins og ég vil..

michael massee lék einmitt funboy í 'the crow' og varð óvart valdur að dauða brandon lee.. eða kannski var það ekkert óvart.. kannski var hann nýbúinn að uppgötva að hann væri geðveikt líkur jcvd og snappaði bara aðeins.. verst að hann skyldi taka það út á herra lee en ekki herra van damme!

jájá.. þetta var nú áhugavert ekki satt.. enn eitt dæmið það hvað ég er skemmd!

fimmtudagur, október 19, 2006

ég á nýjan bíl!!!


see my baby? well, þetta er ekki hann en mitt baby er alveg eins.. mússímúss! fæ hann á morgun.. 2001 árgerð, ekinn 58 þ. fengum hann á 640þ. ásett verð var 790þ. er hann ekki sætur?

miðvikudagur, október 18, 2006

krossið fingurna fyrir mig á morgun!!

mánudagur, október 16, 2006

anniversary

í dag eru 23 ár síðan ég fékk nafnið mitt..

laugardagur, október 14, 2006

tíhíhí..

There was once a young man who, in his youth, professed his desire to become a great writer.

When asked to define "great" he said, "I want to write stuff that the whole world will read, stuff that people will react to on a truly emotional level, stuff that will make them scream, cry, howl in pain and anger!"

He now works for Microsoft, writing error messages.

þriðjudagur, október 10, 2006

enginn stemmari fyrir því...

föstudagur, október 06, 2006

the family album.. ;)

þriðjudagur, október 03, 2006

working out...

erum við að djóka með hvað ég er aum? byrjaði í ræktinni aftur í dag.. sunnefa píndi mig í tvo tíma.. ááááááiii!! shit hvað ég hlýt að verða hress og kát þegar ég vakna í fyrramálið.. gaman gaman.. spurning hvort maður flýji land fyrir fimmtudagstímann..
*ouch* held ég skríði bara upp í rúmið mitt.. væl væl væl...