miðvikudagur, september 27, 2006

am i the worlds most beautiful woman? múaha..

fann þetta í inboxinu mínu á myspace... sem er www.myspace.com/elfa247 btw... þetter dáldið skondið stöff.. hló töluvert mikið.. held að display myndin mín sé aðeins of fótósjoppuð!! múhahaha...

Hello Beautiful,

We are looking for the World's Most Beautiful Woman and we would like to extend an invitation for you to participate. Invitations of this nature are only offered to potential Contestants of your caliber. Central Casting Corp is conducting the world's first international online beauty pageant called "In Search of the World's Most Beautiful Woman®". It's a beauty pageant unlike any other. We are also expecting to enter negotiations with a major television network regarding a potential televsion series. We ask that you visit http://www.TheWMBW.com or my myspace account for more information. I have sought you out on myspace because I believe you are a great candidate for our competition. To join up, just visit our web site and click on the join now button.

We would love to have you aboard! Please feel free to email me with any questions or concerns, I will be more than happy to help you out.

Ashley Bohna
Executive Assistant
Central Casting Corp.
http://www.TheWMBW.com/


u laughing too? ;)

mánudagur, september 25, 2006

að pimpa eða ekki pimpa.....

ég er orðin svo vibbalega góð í mæspeispimpi.. akkuru get ég ekki pimpað þetta dæmi?!? þetta er alveg sama dæmið... argh!!!

föstudagur, september 22, 2006

fyndnast í heimi...

föstudagur, september 15, 2006

búhúhú væl grenj væl...

fór og kvaddi erluna áðan.. kella að fara til mílanó í fyrramálið.. ljóti plebbaskóli að stela henni frá mér.. nú byrja ég að telja niður til jóla.. ;)
já! réttir.. fór í sveitina í gær, stoppaði í hveragerði og hræddi líftóruna úr ísak! bara um leið og hurðin opnaðist þá byrjaði barnið að öskra og vildi ekki hafa mig nálægt sér... reyndi að stara mig til dauða úr fjarlægð.. en svo þegar hann átti að fara að sofa, þá var hann allt í einu tilbúin til að spjalla við frænku.. þuldi nafnið mitt í sífellu víst.. dúllurassinn! erna sagði honum að hann hefði haft nóg af tækifærum til að vera hjá frænku sinni en nú væri það bara of seint og nú ætti hann að sofa.. þá byrjaði hann að kalla á afa sinn.. ef eitthvað er ekki eins og ísak vill að það sé þá er kallað á gústaf langafa til að laga það! eða kannski er hann að biðja um safa?!? notar allavega sama orðið.. múhaha! pabbi og api er líka eins... enda sterk tengsl þar á milli... múhahahahahaha!!!
um ellefu leytið renndi ég í hlað í sveitinni þar sem allir voru blindfullir og illa lyktandi.... aaaahhh.. it's the time of year..
svo var ég bara vakin fyrir allar aldir... klukkan átta!! er ekki í lagi með fólk.. allir aðrir voru reyndar búnir að vera á fótum síðan um sex eða eikkað álíka.. það er bara þeirra geðveila!! ég fór í laugarás að hitta doksa sem var bara mjög ánægður með mig.. enginn astmi og allt í gúddí!! svo kíkti ég í réttirnar, grenjandi rigning og drulla.. alveg eins og það á að vera.. allir blautir inn að beini, hressandi!! ég entist nú alveg í svona klukkutíma eða svo.. helvíti góð! svo stangaði ein rollan mig og ég hljóp grenjandi í burtu.. hehe! er með asskoti flottan marblett! um það snýst þetta allt saman.. ef þú ert ekki blindfullur, rennandi blautur, afar illa lyktandi og marinn og blár þá er ekkert gaman að þessu!! og ég var edrú þannig að ég var ekki alveg memm og stakk bara af í bæinn..
karlmenn!! hvað á það að þýða að raka sig ekki áður en mar fer í réttir að kyssa og knúsa alla í drykkjubrjálæði.. hefði nú ekki drepið þessa menn að vakna bara aðeins fyrr og renna rakvél yfir fésið.. ég er öll rispuð í framan.. öss!!

mánudagur, september 11, 2006

játning!

halló, ég heiti elfa og ég er letingi!!!! afhverju er mar alltaf svona svakalega latur og þreyttur gaur? ha? þarf að rífa mig upp af feita rassinum mínum og gera eikkað! fer austur á fim.kvöld.. kíki á brósa og familíu og fer svo upp í sveit að kíkja á meme koma af fjalli.. svo eru réttir á föstudag.. hef misst af réttum síðustu 3, 4 árin eða eikkað álíka.. ekki þetta árið.. passaði að panta tíma hjá doksa þennan morguninn og fá frí í vinnunni svo ég geti síðan kíkt á kindurnar þegar doksi er hættur að pína mig.. i know.. i know... ég er nörd úr sveitinni.. lítil sveitastelpa.. ég er reyndar orðin svo svaka mikið city að ég endist ábyggilega ekki nema svona korter í öllum skítnum og goo-inu.. eugh!
erla maría er að fara aftur til mílanó eftir 5 daga! erum við sátt? neeei! hver á þá að kúra með mér? má ein gagnkynhneigð stelpa kannski ekki kúra með annarri gagnkynhneigðri stelpu? ég finn ekkert um það í reglubókinni.. er það kannski í uppfærða 2006 eintakinu? hef ekki orðið mér út um hana sko..

miðvikudagur, september 06, 2006

bleugh..

uber hrollur.. þetta rockstar dót mar.. pluh.. það er eitthvað svo svakalega klígjukennt við þetta allt saman.. allt þetta lið sem er eftir (fyrir utan magna auddað) er svooooooo OJ!! nei, toby er ágætur.. dilana er dramadrotting dauðans, þvílíkur vælukjói.. lukas er bara ógeðslegur.. ég er alveg thumbs up með meikup á karlmönnum svona on special occasions.. smá naglalakk og svona er alveg af hinu góða en gaur!! GAUR!! og bara í hvert einasta skipti sem storm sést á skjánum, eða bara ef það er minnst á hana þá æli ég smá!! eeek! múhaha.. er ég að velta mér aðeins of mikið uppúr þessu? sorry, hef bara ekkert annað að gera í augnablikinu..
djö.. er magni góður að svara fyrir sig.. maðurinn hefur húmor.. gaman að'essu.. 'both sung by me' hehehehe.. good stuff.. möst að hafa húmor.. hin virðast hafa frekar takmarkað upplag af honum.. toby á sín móment!
why oh why er allt svona gegnsýrt af rockstar? við erla maría sátum á kaffihúsi í gær í nokkra tíma og spjölluðum meðal annars um þennan blessaða þátt.. og drifum okkur svo heim til að horfa.. sem ég gerði reyndar síðan ekki.. precious sleep!! sorry people að ég vakti ekki til að kjósa.. þið lemjið mig bara ef hann fer heim.. atkvæðin mín hefðu nebbla pottþétt reddað honum! pluh!
ég vona samt að d, l eða s vinni.. toby og magni eru alltof góðir fyrir þetta..