mánudagur, júní 26, 2006

indeed....

föstudagur, júní 23, 2006

extreme boredom

mér leiðist alveg ógurlega í þessu sumarfríi mínu.. þurfti að fara til tannlæknis og ég hlakkaði hreinlega til.. æ, ég hlakka alltaf til að fara til tannsa.. ég er masókisti.. en tannsinn minn fann ekkert hvað er að.. tók myndir og alles.. fann reyndar brotna fyllingu en það er samt ekki það sem var að angra mig.. þarf að sjá til hvort þetta lagast ekki bara af sjálfu sér.. kannski er þetta ekkert tengt tönnslunum..
ég verð að druslast eitthvað útúr húsi.. á morgun... athuga hvort einhver nenni að sötra með mér bjór einhversstaðar.. bjór lagar hvað það sem er að mér í kjaftinum.. kannski mar... nei.. suss.. ekki núna..
ég er hérna í bænum með 'tannpínu' og mamma er uppí sveit með bakverk.. hún fór í 19. júní reiðtúr með hinum kellingunum og datt af baki.. krass bang búmm.. kellingarnar fóru með hana heim og bundu hana við rúmið.. ein gellan er læknir.. "farðu gegt vel með þig.. þú verður alveg í svona 6 til 8 vikur að jafna þig af þessu.." *hear my mother scream!* chilla í 8 vikur.. hún bilast! og hún á eftir að gera mig endanlega geðveika!! how fun! can't wait..

sunnudagur, júní 18, 2006

vúhú..

You Are Scary

You even scare scary people sometimes!

föstudagur, júní 16, 2006

sumarfrí

ég er komin í sumarfrí... þannig að ég er bara lögst upp í rúm með bækurnar mínar... tala við ykkur eftir tvær vikur...

miðvikudagur, júní 14, 2006

kreisí vinna...

vá... þetta er geðveiki mar... ég er svoooo þreytt.. kem heim úr vinnunni og fer að sofa.. síðustu kvöld hef ég verið steinsofandi á þessum tíma.. og aaaalls ekki verið sátt þegar vekjaraklukkan hringir á morgnanna.. og þetta subbu ljóta veður... eruði að grínast? reyndar ágætt veður í gær á meðan við vorum í fjölskyldu- og húsdýragarðinum. brann oggupons á nebbanum... það er bara sexí... en ég er alveg harðákveðin í að reyna að vaka allavega til 10 í kvöld... reyni að horfa á sjónvarp eða eitthvað... annars er ég að lesa svo leiðinlega bók... gorky park... æi, hún er kannski ekki beint leiðinleg að það koma svona kaflar sem eru gegt fræðilegir eitthvað.. þrjú lík finnast skotin í hjartað og það er búið að fjarlægja andlitin og fremst af fingrunum svo þau þekkist ekki... og einn gaurinn er með eikkað spes dental work svo tvö líkin eru líka skotin í framan svo tennurnar splundrast.. og það kemur svona massatexti "réttarlæknirinn skafar leifarnar af tönnunum úr gómnum og setur undir smásjána og notar linsuna sem stækkar tífalt og yaddi yaddi ya" massa texti um þetta dæmi og allt alveg massa posh orðað.. svo gerist þetta í moskvu í kringum 77 eða eikkað álíka og það eru alveg uuuuuuber fordómar í gangi gagnvart öllu og öllum og það er alveg hundleiðinlegt að lesa langan trash talk texta um gyðinga eða vottever.. pluh... en ég neita að gefast upp..

laugardagur, júní 10, 2006

BTW

elfa keypti sko EKKI 3 zappa boli og 1 bleikar zappa nærbuxur.. no way.. hvernig dettur ykkur slíkt í hug...

ZPZ

eftir tuttugu ár held ég að ég geti pottþétt sagt að zappa plays zappa tónleikarnir, 9. júní 2006 voru bestu tónleikar sem ég hef farið á! tár birtust og ég skammast mín ekkert fyrir það. þetta var bara svoooo... fallegt!! gæsahúð í fjórtánda veldi... hrein snilld.. steve vai, terry bozzio, napoleon murphy brock og auðvitað dweezil. þetta var hreinlega ótrúleg upplifun!

getum við fengið tom waits næst?

föstudagur, júní 09, 2006

today is the day

zappa plays zappa í kvöld... ég er vibba spennt auðvitað... skil nottla ekkert í fólki sem er ekki að fara á þessa tónleika... sem eru ansi margir þar sem þeir voru færðir vegna lítillar hreyfingar í miðasölu... bara betra fyrir mig! my own personal show.. verst bara hvað ég er svaaaakalega þreytt... fórum í bæjarferð í vinnunni... labbilabbilabbi í fjóra klukkutíma... 'eru allir á sínum stað?'.. samt gegt gaman hjá okkur... en já, sjitt ég er þreytt... dweezil, steve, terry og napi bæta úr því!

fimmtudagur, júní 01, 2006

snore!

'fyrsti dagurinn' í vinnunni og ég er tilbúin til að hætta!! ef ekki bara deyja.. why did I ever think this was a good idea? nei, ég er bara að djóka.. tíhíhí, þið vitið... þetta var ágætis dagur.. smá fyrirlestur, smá leikir, grill, smá skipulagsfundir, búin á undan áætlun.. hlé.. skyndihjálparnámskeið, ekkert sem ég vissi ekki.. *genius*.. var reyndar alveg að sofna þegar námskeiðið var rétt hálfnað en svo fékk ég pizzu.. vííí.. og losnuðum aðeins á undan áætlun.. á morgun verður eitthvað chill fyrir hádegi og svo förum við í heiðmörk í eitthvað öðruvísi chill.. svo fer ég upp í sveit að undirbúa ferminguna hennar helgu minnar.. they grow up so fast.. *sniff* ég þarf einmitt að fara að pakka inn gjöfinni... gjöfunum.. úú.. csi:miami... akkúrat stemmarinn fyrir veeeerulega lame karaktera!! ciao!