sunnudagur, janúar 22, 2006

helgin....

föstudagur... nada!! fór heim eftir vinnu, fór í náttara og gerði ekki neitt!! elska solis... kláraði að lesa digital fortess eftir dan brown og byrjaði á moving pictures eftir terry pratchett... dáldið stökk!!
laugardagur.... kíkti í ammili til guðrúnar (the no names).. 20 ára gömul stúlkan.. orðin stór bara... stoppaði reyndar alveg sorglega stutt og fór heim í rúmið... orðin svo gömul, hef ekki orku í djamm lengur...
sunnudagur.... grétar kom í bæinn og við fórum í tvöfalt bíó.. cheaper by the dozen2 og hostel.. alveg hægt að brosa aðeins við cbtd2.. og hostel var alveg dásamlega ógeðsleg... skil samt ekki viðbrögðin hjá fólki.. allir sem ég þekki sem hafa séð hana voru bara að fara yfirum.. þurftu að æla og ég veit ekki hvað og hvað..

fínasta helgi bara... róleg! hef ekki pening eða orku í meira... i know.. ég er aumingi... til dæmis er ég alveg uppgefin núna.. held ég fari bara að lúlla!!

föstudagur, janúar 20, 2006

útsala!!!!

minns fór á útsölu í bt áðan... þvílík geðveiki... en minns keypti headphones með mic. og webcam.... whoopidoo!!! og nú ætlar minns að fara að nota skype eins og mo-fo, so look me up!!! en þú þarf minns víst að fara í vinnuna.... later dudes!

miðvikudagur, janúar 11, 2006

i give up...

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin(n) af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Líst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkirðu mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

Komið Nóg!!

föstudagur, janúar 06, 2006

Miracle on Kleppsvegur 4

Tölvan er komin í lag!!! tölvurinn minns virkar!! *sniff* desember er ekki kraftaverkamánuður.. janúar er það!!! *hágrátur* tölvið mitt.. my prescious tölv!!
mamman mín nebbla skemmdi tölvið á gamlárskvöld.. henni leiddist og ákvað að horfa á dvd í tölvinu en dvd dæmið fór ekki strax í gang.. þá ákvað gamla konan að það væri sniðugt að fikta í öllu litlu myndunum neðst niðrí hægra horninu... úpsídeisi... jæja, það virtist ekkert hjálpa við dvd-ið svo hún ákvað að prófa að opna drifið og hagræða disknum aðeins.. viti menn.. það virkaði.. jájá, hún fékk það til að virka en skemmileggjaði t.d. netdótið eikkað... tölvan tengdist en engar síður opnuðust og blablabla... og konan hafði ekki hugmynd um hvað hún gerði... (elfa öskrar og gnýstir tönnum... sem elfa kann reyndar ekki að gera.. gnýsta tönnum þ.e. svaka góð í að öskra)
jájá.. ég panikka og fikta pínulítið.. afar hikandi... mamma fær mág sinn til að kíkja á tölvið og hann er alveg lost þrátt fyrir töluverða tölvukunnáttu.. ákveð að veigar hafi andskotans nóg að gera án þess að ég fari að bögga hann með þessu... ég sendi jónasi sms hvort hann geti athugað þetta.. jónas svarar ekki.. ég fer að fikta eins og mo-fo... fór afar seint að sofa í gær þar sem fiktið var ekki að virka neitt... gefst upp og ákveð að ég verði bara að fara með tölvið í viðgerð... ókei, þannig fór það þá!!
svo legst minns uppí rúmið sitt í nýju fáránlega heitu náttfötunum með bláu röndunum, kveikir á tölvinu og ætlar kannski að leggja kapal, ýti alveg óvart á explorer merkið og glugginn opnast og viti menn, síða birtist... mín síða meiraðsegja!!!
happy happy joy joy elfa fer að blogga... og núna búið.. ómerkilegt máski en svona verður það að vera!!

mánudagur, janúar 02, 2006

gleðilegt nýtt ár people!!!