mánudagur, nóvember 27, 2006

helgin..

ég fékk tvær litlar prinsessur í heimsókn til mín.. auður og vigdís, elsku dúllufrænkur mínar ákváðu að vera í pössun hjá mér á meðan foreldrarnir færu út að borða og eitthvað slíkt.. eitthvað með vinnu annaðhvors þeirra.. voða mikið plebbadót.. eníveis, þær mættu yndin mín með litla bleika ferðatösku á hjólum sem innihélt aukaföt, prinsessukjól, dvd mynd, bók, tannbursta og nammi.. mest af nammi.. ;) way to pack!! svo hafði ég líka keypt smá nammi til að hafa, það var nú einu sinni nammidagur fólk.. það var semsagt bara partí á meðan við horfðum á mikka mús og félaga í jólastemmara.. þær höfðu horft á þetta milljón sinnum en spurðu mig stanslaust afhverju þessi gerði þetta eða afhverju þetta væri svona.. i dunno.. ég skil ekkert í þessu rugli.. disney fasismi.. ég þoli ekki mikka mús... en hvað gerir maður ekki fyrir blessuð börnin.. merkilegt nok þá tók ca. fimm mínútur að fá þær til að fara í náttfötin og tannbursta sig.. 'ég ætla að telja upp á 20 og þá eigiði að vera komnar í náttarana!' þær báðu svo um að auka tímann upp í 50 fyrir tannburstunina vegna þess að það var svo mikið nammi á tönnunum! :) vúppídú, byrjar fjörið.. við lásum sögu um pomperipossu með langa nefið.. tongue twister.. þær kunnu auðvitað söguna og voru alltaf að segja hvað kæmi næst, dang it.. spoil it why don't you..
svo var greinilega kominn tími á að pína frænku.. halda henni niðri með öllum tiltækum ráðum og reka framan í hana tærnar.. lovely children.. i still smell feet!! en þær eru sko ekkert smá sterkar systurnar.. 5 og 6 ára ormar! þetta fannst þeim alveg óskaplega gaman og það tók alveg smá tíma að róa sig niður.. sofnuðu loksins um tíu.. don't tell the parents!
þær voru sko búnar að spyrja hvort þær mættu sofa í gerðu-rúmi en koma svo og skríða upp í til mín.. og þær komu rétt rúmlega sjö!!!! tóku af mér sængina og lágu hjá mér í smá stund.. svo fórum við fram og ég gaf þeim jógúrt og kveikti á sjónvarpinu fyrir morgunsjónvarpið og fór svo aftur inn í rúm.. :) en ég fékk ekkert að sofa.. þær komu til mín á 5 mín fresti með svona 'afhverju er himininn blár' spurningar.. ég elska þær útaf lífinu en vá hvað þetta var erfitt..

ég keypti skó.. ég fór svo á jólahlaðborð í umræddum skóm.. labbaði inn, settist niður, spjallaði og borðaði.. labbaði svo oggu meira og heyrði þá að klikkið í hælunum var ekki eins.. tappinn dottin af! ég kannski búin að labba svona 100 skref í þeim! djók??? ég ætla svo að fara og pirrast.. ég borga ekki svona marga peninga fyrir einnota skó!!!
fyrir utan skóvesen, svefnleysi og slappleika þá var ansi gaman bara.. ýmislegt hægt að setja út á matinn en kannski er það bara mitt álit.. smekkur manna er víst misjafn.. það var ábyggilega einhver sem vildi hafa meira af einhverju sem ég vildi minna af.. eins og salt.. og sýrður rjómi.. stöff..
fullt af fólki, allir að spjalla og borða og hafa gaman en borðið okkar var það eina sem var hreinlega á ferð.. öskrað og grenjað af hlátri.. það er líka alltaf mjög gaman hjá okkur.. :) vildi samt að ég hefði verið betur stemmd í kvöld.. var voða lítið memm eitthvað.. alveg útúr heiminum.. bæti það bara upp næst..

geezuz.. ég ætlaði mér nú að fara frekar snemma að sofa.. planið ekki að ganga eftir..

3 Comments:

Anonymous ergla said...

og svo söngstu í karókí í sjónvarpinu líka!

28/11/06 10:24 AM  
Anonymous ergla said...

sagði vouge að bloggið væri dautt eða?

7/12/06 8:14 PM  
Blogger Elfa said...

ÉG ER BARA BISSÍ!! CHILL DUDE!

8/12/06 3:12 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim