föstudagur, september 15, 2006

búhúhú væl grenj væl...

fór og kvaddi erluna áðan.. kella að fara til mílanó í fyrramálið.. ljóti plebbaskóli að stela henni frá mér.. nú byrja ég að telja niður til jóla.. ;)
já! réttir.. fór í sveitina í gær, stoppaði í hveragerði og hræddi líftóruna úr ísak! bara um leið og hurðin opnaðist þá byrjaði barnið að öskra og vildi ekki hafa mig nálægt sér... reyndi að stara mig til dauða úr fjarlægð.. en svo þegar hann átti að fara að sofa, þá var hann allt í einu tilbúin til að spjalla við frænku.. þuldi nafnið mitt í sífellu víst.. dúllurassinn! erna sagði honum að hann hefði haft nóg af tækifærum til að vera hjá frænku sinni en nú væri það bara of seint og nú ætti hann að sofa.. þá byrjaði hann að kalla á afa sinn.. ef eitthvað er ekki eins og ísak vill að það sé þá er kallað á gústaf langafa til að laga það! eða kannski er hann að biðja um safa?!? notar allavega sama orðið.. múhaha! pabbi og api er líka eins... enda sterk tengsl þar á milli... múhahahahahaha!!!
um ellefu leytið renndi ég í hlað í sveitinni þar sem allir voru blindfullir og illa lyktandi.... aaaahhh.. it's the time of year..
svo var ég bara vakin fyrir allar aldir... klukkan átta!! er ekki í lagi með fólk.. allir aðrir voru reyndar búnir að vera á fótum síðan um sex eða eikkað álíka.. það er bara þeirra geðveila!! ég fór í laugarás að hitta doksa sem var bara mjög ánægður með mig.. enginn astmi og allt í gúddí!! svo kíkti ég í réttirnar, grenjandi rigning og drulla.. alveg eins og það á að vera.. allir blautir inn að beini, hressandi!! ég entist nú alveg í svona klukkutíma eða svo.. helvíti góð! svo stangaði ein rollan mig og ég hljóp grenjandi í burtu.. hehe! er með asskoti flottan marblett! um það snýst þetta allt saman.. ef þú ert ekki blindfullur, rennandi blautur, afar illa lyktandi og marinn og blár þá er ekkert gaman að þessu!! og ég var edrú þannig að ég var ekki alveg memm og stakk bara af í bæinn..
karlmenn!! hvað á það að þýða að raka sig ekki áður en mar fer í réttir að kyssa og knúsa alla í drykkjubrjálæði.. hefði nú ekki drepið þessa menn að vakna bara aðeins fyrr og renna rakvél yfir fésið.. ég er öll rispuð í framan.. öss!!