óskemmtilegt..
veikindi eru ekkert skemmtileg.. hvort sem þau eru líkamleg eða andleg.. sem er bæði í gangi... aðallega andlega dæmið núna samt.. og kvef... þetter svona.. doksi niðrá geðdeild sagði að ég þyrfti að bíta á jaxlinn og drullast út úr húsi og mingla svo ég er að fara útúr bænum á morgun.. útilega.. við ætlum reyndar bara að fara heim í sveitina mína og tjalda þar útá túni.. svo ef kvefið gerir útaf við mig þá fer ég bara heim í rúm og skil restina af liðinu eftir útí tjaldi... hehehe.. reyndar hrýt ég þegar ég er kvefuð svo það er ekkert ólíklegt að þau kjósi bara frekar að hafa mig ekki með í tjaldbúðunum.. jæja, ég þarf að fara að leita að eikkurum hlýjum fötum.. veit ekki alveg hvar ég á að galdra það fram.. ég held að ég eigi ullarsokka..


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim