miðvikudagur, júní 14, 2006

kreisí vinna...

vá... þetta er geðveiki mar... ég er svoooo þreytt.. kem heim úr vinnunni og fer að sofa.. síðustu kvöld hef ég verið steinsofandi á þessum tíma.. og aaaalls ekki verið sátt þegar vekjaraklukkan hringir á morgnanna.. og þetta subbu ljóta veður... eruði að grínast? reyndar ágætt veður í gær á meðan við vorum í fjölskyldu- og húsdýragarðinum. brann oggupons á nebbanum... það er bara sexí... en ég er alveg harðákveðin í að reyna að vaka allavega til 10 í kvöld... reyni að horfa á sjónvarp eða eitthvað... annars er ég að lesa svo leiðinlega bók... gorky park... æi, hún er kannski ekki beint leiðinleg að það koma svona kaflar sem eru gegt fræðilegir eitthvað.. þrjú lík finnast skotin í hjartað og það er búið að fjarlægja andlitin og fremst af fingrunum svo þau þekkist ekki... og einn gaurinn er með eikkað spes dental work svo tvö líkin eru líka skotin í framan svo tennurnar splundrast.. og það kemur svona massatexti "réttarlæknirinn skafar leifarnar af tönnunum úr gómnum og setur undir smásjána og notar linsuna sem stækkar tífalt og yaddi yaddi ya" massa texti um þetta dæmi og allt alveg massa posh orðað.. svo gerist þetta í moskvu í kringum 77 eða eikkað álíka og það eru alveg uuuuuuber fordómar í gangi gagnvart öllu og öllum og það er alveg hundleiðinlegt að lesa langan trash talk texta um gyðinga eða vottever.. pluh... en ég neita að gefast upp..