mánudagur, apríl 03, 2006

the eagle has landed..

það var alveg óendanlega gott að vera hjá hildi og familíu í svíþjóð.. faðmaði stelpurnar svo svakalega að þær náðu varla andanum... og vildi sko ekki sleppa... *sniff*
ég verslaði eins og mo-fo en eyddi samt bara ca 20 þ. kalli.. og ég keypti bara EITT par af skóm.. hvað er eiginlega að mér? sorglegt...

vitiði hvað ég er vitlaus... ég lagðist uppí rúm í gær og stillti vekjarann á símanum á ellefu.. ætlaði svoooo að sofa... svo hringdi vekjarinn þegar klukkan var orðin ellefu...... í svíþjóð!!!! en hérna á blessuðu íslandinu var klukkan bara níu.. elfa var ekki í góðu skapi... elfa gat nebbla ekki sofnað aftur... og núna er elfa þreytt.. elfa ætlar að fara að sofa..