föstudagur, janúar 06, 2006

Miracle on Kleppsvegur 4

Tölvan er komin í lag!!! tölvurinn minns virkar!! *sniff* desember er ekki kraftaverkamánuður.. janúar er það!!! *hágrátur* tölvið mitt.. my prescious tölv!!
mamman mín nebbla skemmdi tölvið á gamlárskvöld.. henni leiddist og ákvað að horfa á dvd í tölvinu en dvd dæmið fór ekki strax í gang.. þá ákvað gamla konan að það væri sniðugt að fikta í öllu litlu myndunum neðst niðrí hægra horninu... úpsídeisi... jæja, það virtist ekkert hjálpa við dvd-ið svo hún ákvað að prófa að opna drifið og hagræða disknum aðeins.. viti menn.. það virkaði.. jájá, hún fékk það til að virka en skemmileggjaði t.d. netdótið eikkað... tölvan tengdist en engar síður opnuðust og blablabla... og konan hafði ekki hugmynd um hvað hún gerði... (elfa öskrar og gnýstir tönnum... sem elfa kann reyndar ekki að gera.. gnýsta tönnum þ.e. svaka góð í að öskra)
jájá.. ég panikka og fikta pínulítið.. afar hikandi... mamma fær mág sinn til að kíkja á tölvið og hann er alveg lost þrátt fyrir töluverða tölvukunnáttu.. ákveð að veigar hafi andskotans nóg að gera án þess að ég fari að bögga hann með þessu... ég sendi jónasi sms hvort hann geti athugað þetta.. jónas svarar ekki.. ég fer að fikta eins og mo-fo... fór afar seint að sofa í gær þar sem fiktið var ekki að virka neitt... gefst upp og ákveð að ég verði bara að fara með tölvið í viðgerð... ókei, þannig fór það þá!!
svo legst minns uppí rúmið sitt í nýju fáránlega heitu náttfötunum með bláu röndunum, kveikir á tölvinu og ætlar kannski að leggja kapal, ýti alveg óvart á explorer merkið og glugginn opnast og viti menn, síða birtist... mín síða meiraðsegja!!!
happy happy joy joy elfa fer að blogga... og núna búið.. ómerkilegt máski en svona verður það að vera!!