þriðjudagur, desember 27, 2005

veikindi...

veikindi sökka... ælupest sökkar feitt!!! reyndar frekar væg ælupest en samt sem áður.. eugh!! svaf absolutely ekkert síðustu nótt, fór uppí vinnu um átta, skilaði af mér tölvunni og símanum og fór aftur heim... náði á endanum að sofna og svaf í smástund.. gat ekki opnað augun almennilega.. ekkert smá bólgin... og er öll stíf og stirð og með harðsperrur... svakalega gaman... en nú er ég hætt þessu og ég ætla að fara í vinnuna á morgun... erum að fara í bíó.. ég fer ekki að missa af því... teiknimynd með íslensku tali.. my fav... vona að þetta verði samt rólegur dagur svo ég geti aðeins náð upp orku... fat chance though...

jólin voru góð fyrir utan nett veikindi sem voru að plaga fólkið en það var samt roda fínt uppí sveit.. allir pakkar reyndust innihalda frábæra hluti og allir fóru að sofa sáttir við sitt.. meðal þess sem ég fékk var tölvuleikur.. strange... csi:dark motives heitir hann og er alveg brill.. ég er svo svakalegt nörd.. en því miður hef ég leyst öll málin og komið hinum seku á bakvið lás og slá svo það er búið.. dáldið einnota leikur... eða kannski er ætlast til þess að það taki lengri tíma að klára þetta.. ég er bara alltof andskoti góð í þessu..

jæja, ég ætti að fara að lúlla.. vera fersk og fín í vinnuna.. samt spurning að glugga aðeins í nýju bækurnar mínar.. held ég byrji á terry pratchett... eða kannski terry pratchett.. hehehe.. góð jól...
heyriði já... ég gleymdi.. GLEÐILEG JÓL... það er ekkert of seint að segja það.. það eru enn tæknilega séð jól...

sunnudagur, desember 18, 2005

x-mas

það er dáldið erfitt að venjast því að vera aftur komin með tölvu og geta bloggað hvenær sem er... svo bare with me.. þetta kemur..
eikkað í fréttum? ekkert merkilegt.. ég frekjaðist eins og ég gat og er að vinna mest af öllum í kringum jólin.. hehehe.. peningarnir streyma inn... múhahaha... var samt neydd til að taka tvo frídaga, 21. og 29. ætli ég lifi það ekki af.. hlýt að finna mér eikkað að gera... hlýt að geta lesið eikkað af þessum 11 bókum sem ég keypti á 350 kall um daginn...
kraftaverk... allar jólagjafir búnar fyrir löngu og búið að pakka öllu inn.. er það ekki magnað... rámar í dáldið margar þorláksmessur þar sem verið var á milljón að klára.. og pakka inn jafnvel rétt fyrir klukkan 6 á aðfangadag... auðvitað man enginn annar í fjölskyldunni eftir þessu þar sem ég var yfirleitt ein í þessu... hef verið látin pakka inn öllum gjöfum frá því ég man eftir mér.. og ég á mjööööög stóra fjölskyldu... ekki alltaf verið gaman... yfirleitt samt þar sem mér finnst actually gaman að pakka inn... já, ég veit.. freak!!
ég er búin, man ekkert meira til að segja... later!!

sunnudagur, desember 11, 2005

lífið eftir klukkið....

það er svosem ekkert að frétta... frændsystkin komu í bæinn á fös. fór að versla með litlu frænku.. levis gallabuxur á 13 þús. úlpa á 5000 (útsala eða eikkað álíka) og svo converse skó... keypti þá reyndar án mín svo ég ekki hvað þeir kostuðu en vottever.. total-ið er miklir miklir peningar... en hvað sem þarf til að stúlkan lifi af 8. bekkinn.. svo fórum við að versla jólagjafir handa vinkonum hennar... úúúú. girl bonding... ákveðið hafði verið að fara í bíó en eikkað var ruglast svo myndin sem planað var að fara á var ekki í sýningu á þessum stað á þessum tíma.. og einu myndirnar sem var verið að sýna á þeim tíma voru 'noel' og 'just like heaven' og plakötin gerðu það að verkum að ég nýtti mér það að vera elst og frekust (hardly...) og harðneitaði að sjá þær myndir.. en ég samþykkti að fara á harry potter klt. seinna... jafnvel enn betri í annað skiptið... :) þetta var annars fínasta helgi svona á heildina litið... fór austur seinnipartinn í gær, restin af liðinu hafði farið um morguninn og slapp þessvegna við myrkur, rigningu og árekstra sem lokuðu veginum og ég var strand í hveragerði hjá veigari og co. þar var jökull að hjálpa veigari að laga húsið aðeins fyrir sölu.. amm.. endaði með því að ég var í mat.. smakkaði humar í fyrsta skipti, mjög gott... lék við ísak sem er orðinn svaka stór.. tók böns af myndum af honum.. ætla að finna tíma til að setja þær hér inn.. eða.. reyna að finna útúr því hvernig það er gert...
komst á endanum austur.. í tæka tíð til að sjá endann á miss world 2005 sem frænka mín var að sleppa sér yfir... hún hafði flett unni birnu upp í íslendingabók og komist að því að þær væru skildar í 4 ættlið, föðurmegin.. æ, náði því ekki alveg.. svo fórum við í fyrirsætuleik að ósk helgu.. förðun og hárgreiðsla og fullt af myndum.. lofaði að reyna að setja eikkað af myndunum inn á síðuna hennar.. i'll try to try.. can't promise i'll try...
eníveis, þetta er frekar dull færsla og ég orðin drulluþreytt.... later!!!

miðvikudagur, desember 07, 2005

stupid klukk...

jæja.. ætli ég verði ekki að gera þetta klukk dæmi.. nema ég ætla að breyta þessu í 5-7 hluti.. ég er búin að reyna og ég get bara ekki fundið 7 í öllu... :( og ég ætla ekki að klukka neinn.. það eru allir búnir að gera þetta.. ef einhver endilega vill þá be my guest en ég ætla ekki að klukka neinn sérstakan..

5-7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey....

..klára skólann.. eikkurn skóla...
..vinna óskar fyrir besta leik í aðalhlutverki..
..hjálpa erlu maríu að útrýma misskilningi um femínisma, rasisma osfrv. ;)
..ferðast um allan heiminn.. og ég meina ALLAN heiminn!!!
..kenna mömmu á tölvuna, símann, vídjóið osfrv.. ;)
..giftast nicolas cage... eða vin diesel..

5-7 hlutir sem ég get...

..bitið í tærnar á mér..
..drukkið nánast endalaust af kaffi..
..lesið á hvolfi..
..rústað öllum í störukeppni..
..útilokað kulda..
..haldið lífi í plöntum..

5-7 hlutir sem ég get ekki...

..komið móður minni í skilning um að ég sé 22 ára.. ekki 5!!
..sungið
..dansað
..drukkið hvítvín
..borðað súrmat..
..fundið meira til að setja hér..

5-7 hlutir sem heilla mig í fari karlmanna..

..gáfur
..hæfileikar
..mannasiðir
..hæfilegt kæruleysi
..sense of adventure

5-7 frægir sem heilla...

..david bowie
..frank zappa
..tom waits
..janis joplin
..gandhi
..morrissey

5-7 setningar eða orð sem ég nota mikið..

..sjæt
..arse
..huges
.."krakkar, viljiði gjöra svo vel að raða skónum og hengja upp úlpurnar!"
..amm

5-7 hlutir sem ég sé núna..

..svört loðhúfa sem amma mín átti..
..naglaþjöl
..símann minn
..bæklinga sem fylgdu með tölvunni
..tölvuna.. duh..
..gyllta rúllu af svona jólapakkabanda-thingeríi..

búið.. ég segi upp!!

þriðjudagur, desember 06, 2005

insanity...

móðir mín er lasin gömul kona... ég er farin að hafa áhyggjur.. ég kom heim úr vinnunni í gær og mamma spurði hvort við ættum að fara og skoða tölvur.. vorum eila búnar að ákveða að fjárfesta í nýrri tölvu eftir áramót... ég hafði ekkert að gera og það var ekkert í sjónvarpinu svo ég samþykkti að fara með og skoða.. mamma keyrði niðrí borgartún þar sem oddi er víst staðsettur.. ólrætí.. fórum inn og skoðuðum eikkurar gateway tölvur.. ein sem átti að kosta tæp 100 þús. en var lækkuð niðrí 59 þús. kemur starfsmaður og spyr hvort hægt sé að aðstoða... "já, ég er að hugsa um að fá eina svona.." eins og ég segi, móðir mín er lasin gömul kona..
eníveis, það er semsagt komin tölva á heimilið.. svona líka sæt og fín..