miðvikudagur, júní 29, 2005

stupid me...

já, dáldið mikið pirruð.. langaði að vita hvað kom fyrir najai turpin (já, ég er byrjuð aftur) og ákvað að fara í the contender síðuna.. hugsaði nottla ekki alveg þar sem það fyrsta sem ég sá var ; 'name' : the contender!! mig langaði ekkert að vita það.. meina, það er ekkert heimsendir þó ég viti hver vinnur en samt... eníveis, á þeirri síðu komst ég heldur ekkert að því hvernig najai dó.. *pirr*
en ég nottla gafst ekki upp..
það er afskaplega margt að þessum þáttum þó mér finnist þeir æði.. var að lesa helling af dóti, sumt sem ég vissi og margt sem ég vissi ekki.. klásúlur í samningum og sollis..
það var köttað á öll samskipti við umheiminn.. engar tölvur, engir símar, peningar.. ekki neitt.. þættirnir voru teknir upp og svo nokkrum mánuðum síðan var lokabardaginn.. og í millitíðinni máttu þeir ekki berjast, samkvæmt samningnum.. átta mánuðir eða eikkað þar sem þeir urðu bara að gjöra svo vel að finna sér eikkað annað að gera... en, þessir gaurar eru boxarar, það er það sem þeir gera.. og najai tapaði fjár-uppsprettu sinni eða solis.. og konan hans hafði miklar áhyggjur að velferð dóttur þeirra í kjölfarið og sótti um skilnað og 'sole custody' yfir dóttur þeirra.. í fyrstu 'yfirheyrslu' dæmdi rétturinn henni í hag og najai fór og skaut sig!! lovely.. já, btw.. þeir voru auðvitað látnir fara í allskonar próf fyrir þættina.. hve vel þeir myndu höndla andlega álagið sem myndi fylgja þessu öllu og allt sollis.. mælikvarðinn var á bilinu 1-6.. og flestir, ef ekki allir, fengu 6... nema najai, hann fékk þrjá.. not good... þannig að andlegt ástand hans var ekki gott til að byrja með.. sniðugt..
eníveis, mér líður alveg hræðilega yfir því hvað ég er mikið nörd og ég biðst innilegrar afsökunar... ekki lesa þetta! bara, do urself a favour.. pointless nottla að nefna það í lok færslunnar en.... æi, run.. RUN AWAY!!! close this window!!!
ég get ekki lofað en ég skal reyna að skrifa aldrei aftur um eikkað svona... ókei?

þriðjudagur, júní 28, 2005

the contender ofl

já.. ég er alveg að missa mig yfir þessum blessuðu þáttum... ég veit.. sóóóó unkúl.. en ég get ekkert að þessu gert.. ég er föst.. geri mitt allra besta við að tala ekki við neinn á mánudögum svo ég slysist ekki til að mæla mér mót við einhvern og missa þar af leiðandi af the contender.. sit stjörf fyrir framan sjónvarpið og lifi mig ekkert smá inní þetta allt saman, eins krappí og það er.. hélt þvílíka ræðu yfir móður minni um þetta.. held að það sé þessvegna sem hún fór uppí sveit í þrjár vikur.. ;) ég er svo að bilast yfir þessu.. berst við að halda aftur af tárunum þegar marg-nefbrotnuðu hörkutólin grenja yfir því hvað þeir hafa átt erfitt og séu að gera þetta til að bjóða börnum sínum betra líf eða eikkað solis... og ég sver það, i sooo did the happy dance þegar ahmed kaddour datt út.. söng og dansaði um íbúðina.. og ég hvorki syng né dansa so... eníveis, þetter hallærislegt svo ég er að hugsa um að hætta að tala um þetta.. ætla ekki að fara út í umræður (við sjálfa mig) um þáttinn í kvöld og skoðanir mínar á þessu öllu saman... en samt, greyið jeff fraza! :( *sniff*
ó, kræst... how low i have sunk!!

ammm.. ég skammast mín...

allir að mæta í stúdentakjallarann annaðkvöld (eða í kvöld, hvernig sem þið viljið líta á það) á tónleika hjá malneirophrenia.. 500 kall, mar... styrkja aumingjana um skitinn 500 kall svo þeir geti tekið þátt í þessari tónlistarhátið á ítalíu..

now.. i'm gonna bury my head in shame.. god, forgive me!!

mánudagur, júní 20, 2005

lífið og tilveran..

friður.. svo mikill endalaus friður.. mamma í fríi uppí sveit og minns bara einn í heiminum.. svo þægilegt..
17. júní var killer... vibbalegi hiti.. fór alveg með mig.. platseruðum okkur á austurstræti en náðum ekki að koma okkur almennilega fyrir eða sminka okkur eða neitt.. 2000 sólgleraugu og 8000 blá trúðanef hurfu á nó tæm... fólk alveg bilað.. hefði svo innilega ekki látið sjá mig niðrí bæ hefði ég ekki verið að vinna.. svo þegar dótið var allt horfið þá skreið minns heim.. var voða lítið gagn í mér þar sem ég kann ekki að joggla eða ganga á stultum, töfrabrögð eða neitt af þessu dóti.. þannig að ég ráfaði heim, stoppaði á leiðinni og keypti mér ódýrasta vatnið í 10/11 en var svo dofin og máttlaus af hita að ég gat ekki opnað flöskuna.. en ég komst heim á endanum og hneig bara niður á kaldar flísarnar frammá gangi... samt með geðveikan móral að hafa beilað á liðinu.. en eins og ég segi, ég kann ekkert af þessu dóti þannig að það hefði ekkert gagn verið í mér þarna..
eníveis..
ég fékk svona líka helvíti gott boð um að vera kærasta um daginn.. ;) verst bara að ég hef engan áhuga á að bera þann titil.. it creeps me out...
jæja, ég er farin.. got stuff to see and people to do.. or was it the other way around.. puh.. who cares..

þriðjudagur, júní 14, 2005

leti

ég þoli ekki svona veður.. ég höndla ekki hitastig yfir 5 gráðum.. ég verð svo dofin og máttlaus eikkað.. hvernig fer minns að því að búa í suður afríku?? spurning að hætta bara við það allt... nei, ég held ekki.. ég ÆTLA þangað, hvort sem ég kemst inn í þennan skóla eður ei.. but for now.. i think i'll hide from the heat by crawling under the bed or something.. ta-ta for now..

þriðjudagur, júní 07, 2005

uuuu...

u know how i'm.. ehm.. u know.. kinda... uu.. a little bit.. eee... umm.. scared of clowns... well, now, a part of my brand new job is to play one.. :( veðmál um það hvort ég meiki sumarið, án virkilega sterkra róandi lyfja eða eitthvað slíkt, byrja núna!!!

laugardagur, júní 04, 2005

subbulegt...

ókei, ókei.. ég var búin að lofa sjálfri mér að ég myndi aldrei gera þetta aftur en maður á víst aldrei að segja aldrei.. hræðilegt helvítis rugl.. ókei, ég var með smá mannfagnað í gær.. allt í góðu.. bara vinnufélagarnir og sonna.. eða.. fyrrverandi vinnufélagar.. jújú, áfengi var við hönd og mín var ansi góð.. og þegar mar fer að finna á sér þá verður mar bara vibbalega vitlaus, ekki satt? ég vissi að ég hefði ekki átt að fara niðrí bæ, vissi að það væri komið nóg.. en nei, fékk ég einhverju ráðið um það? ekki frekar en venjulega.. ókei, ég, gunni, siggi og... uu.. eikkur gaur fórum niðrí bæ og kíktum á ellefuna.. og gunni ákvað að við skyldum fá okkur skot.. jájá, mig langaði alveg að smakka þetta gums sem hann hefur verið með á heilanum undanfarið.. plús, his cash!! tók skotið og varð um leið alveg ógeðslega veik.. ætla ekki að fara útí nein details en þið getið rétt ímyndað ykkur.. *hrollur* það er sjaldgæf sjón að sjá elfu pissfulla og ælandi... amm.. subbulegt!
eníveis, það er nottla baaaraaa heimskulegt að vera að skrifa um þetta en nú vitiði það.. ég er bara mannleg!!! en vitiði hvað er virkilega hræðilegt.. ég man þetta allt saman!! :(
takk siggi fyrir að koma mér heim.. u're the best, dude!! i owe u!!

miðvikudagur, júní 01, 2005

what up homies?

ég er alveg drulluhrædd um að nefna þetta en það lítur allt út fyrir að ég sé að fá alveg snilldarvinnu í sumar.. 4 days a week, loads of cash, travels, just having fun!! rokk og fokkin ról... nei, nú fæ ég ekki vinnuna.. i've jinxed it!! damn u!!