mánudagur, júní 20, 2005

lífið og tilveran..

friður.. svo mikill endalaus friður.. mamma í fríi uppí sveit og minns bara einn í heiminum.. svo þægilegt..
17. júní var killer... vibbalegi hiti.. fór alveg með mig.. platseruðum okkur á austurstræti en náðum ekki að koma okkur almennilega fyrir eða sminka okkur eða neitt.. 2000 sólgleraugu og 8000 blá trúðanef hurfu á nó tæm... fólk alveg bilað.. hefði svo innilega ekki látið sjá mig niðrí bæ hefði ég ekki verið að vinna.. svo þegar dótið var allt horfið þá skreið minns heim.. var voða lítið gagn í mér þar sem ég kann ekki að joggla eða ganga á stultum, töfrabrögð eða neitt af þessu dóti.. þannig að ég ráfaði heim, stoppaði á leiðinni og keypti mér ódýrasta vatnið í 10/11 en var svo dofin og máttlaus af hita að ég gat ekki opnað flöskuna.. en ég komst heim á endanum og hneig bara niður á kaldar flísarnar frammá gangi... samt með geðveikan móral að hafa beilað á liðinu.. en eins og ég segi, ég kann ekkert af þessu dóti þannig að það hefði ekkert gagn verið í mér þarna..
eníveis..
ég fékk svona líka helvíti gott boð um að vera kærasta um daginn.. ;) verst bara að ég hef engan áhuga á að bera þann titil.. it creeps me out...
jæja, ég er farin.. got stuff to see and people to do.. or was it the other way around.. puh.. who cares..