one handed e!
amm.. skar pínulítið af mér fingurna um daginn.. nei, ég er nú að ýkja aðeins máski.. ég skar aðeins í vísifingur vinstri handar.. var að finna til nesti handa krökkunum í vinnunni.. ætlaði ekki að ná að skera niður apelsínurnar með þessum lásí hníf en svo flaug hann í gegnum fingurinn á mér... blóð útum allt.. kom eikkur kona inn í eldhúsið.. 'uu, ekki geturu rétt mér smá pappír?' tjáði henni stuttu seinna að plástur myndi líklega ekki vera nóg.. duh.. eníveis, tveim tímum seinna labbaði ég útaf slysó með nokkra sauma (gaurinn vildi ekki sauma allt svæðið útaf eikkurum krappí litlum taugum... já, og að það myndi skemma fingrafarið mitt... puh..) og afar illa umbúinn putta.. við tók gegt vesen... eltingaleikur við lykla að tígrisbæ svo dótinu mínu gæti verið bjargað úr gíslingu og yaddi yaddi ya.. kom svo loksins heim og fór fljótlega í rúmið.. svaf frá sjö til hádegis daginn eftir.. vaknaði aðeins til að fara í sturtu..
það er fjandi erfitt að pikka svona.. hætt!!
over and out!
það er fjandi erfitt að pikka svona.. hætt!!
over and out!


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim