þriðjudagur, október 26, 2004

bad blogger....

já, ég ætti bara að skammast mín... alveg ótrúlegt..
en ég hef bara ekkert að segja svosem... fór í ferðalag með vinnunni á laugardag... hittumst öll heima hjá einni gellunni og byrjuðum að drekka og sona... hlaða byssurnar og setja á okkur stríðsmálninguna... fórum svo á 'the-meeting-point' og fundum okkur góðan staða í rútunni.. komumst að því að við vorum þau einu með byssur, pela (actual pela sko.. barnapela..) og stríðsmálningu... en það var allt í fínasta lagi... svo byrjaði sko söngurinn.. en í miðju 'stál og hnífur' var köttað á okkur og tilkynnt í míkrófóninn að þetta væri of niðurdrepandi... puh.. bite me... létum það ekkert stöðva okkur svosem þó fólkið væri ekki að biðja um óskalög eða stofna aðdáendaklúbba eða eikkað.. ég var reyndar alveg vibba þreytt allan fokkin daginn svo ég tók mér smá pásur frá söngnum... svo var okkur hent út í hvammsvík eða hvað sem það hét.. jú, gæti svarið að það var hvammsvík.. eníveis, þar fórum við í eikkura leiki í skítakulda... brrrr... alveg hrikalegt.. verið að rífast um stig og alles... get ekki skilið það.. like i give a flying fuck hvorir unnu, vangefnir eða slefandi... það voru semsagt nöfnin á liðunum... afar fallegt... en já, svo chilluðum við á kjalarnesi, fengum að borða, fórum í drykkjuleiki, sungum meira, jafnvel aðeins uppá sviði með míkrófóna og læti..
ég er alveg stórslösuð eftir þennan dag.. og föstudaginn.. einn krakkinn sló í bakið á mér og það læstist alveg.. svo steig gunni oná fótinn á mér í ferðinni og ég haltra.. svo rústaði ég hnénu og skar mig illa á bjórtappa... :( very bad... er alveg svakalega aumingjaleg þessa dagana... en það hlýtur að lagast... eníveis.. þarf að læra.. finna mynd af fíl og sona... undirbúa fyrirlestur um pappír og fleira skemmtilegt... later dudes..

miðvikudagur, október 20, 2004

This isn't life in the fast-lane... It's life in the oncoming traffic!!

fimmtudagur, október 14, 2004

yawn....

er í vinnunni.. voða dull eikkað í augnablikinu.. erum í tölvuverinu.. er búin að vera að skoða síður sem voru inn í history.. cartoonnetwork.com, disney.com, barbie.com ofl.. ofsalega gaman....
ætla að fara austur um helgina.. fyrsta skipti síðan í byrjun júní.. svo fer ég aftur um jólin... ;) eða kannski ekki.. það fer allt eftir því hvort ég lifi þessa helgi af....
nennekki að skrifa... disney.com here i come... ;)

laugardagur, október 09, 2004

bíóbíóbíó

jújú.. við stella skelltum okkur í bíó í gærkvöldi.. á wimbledon.. ekki mín uppáhaldsblanda, rómans og íþróttir en ég lét mig hafa það.. pæliðiíðí... rómantísk gamanmynd um tennis.... geezzzzz.... ég hef einungis eitt að segja um þessa mynd... PAUL BETTANY ER FOKKIN GORGEOUS.... jesús kristur hvað maðurinn er æðislegur... fáránlegt.. hann er með ljósrautt hár og allur útí freknum...... en þessi breski hreimur... *sleeeeeeef* og hann er bara ógeðslega sætur.. þó hann sé samt ekki 'sætur'... fann quote á imdb þar sem eikkur er að lýsa paul bettany...
"This guy looks like a skeleton wrapped in pale white wax paper with a blonde wig.
The day a clown like this becomes a 'sex symbol' is the day women have collectively lost their minds."
well people, it's official... elfa has lost her mind...

föstudagur, október 01, 2004

code-fokkin-error

er svo innilega komin með nóg af þessu útlenska síma rugli... fyrir mánuði hringdi ég út og bað um kóðann til að opna símann, borgaði fyrir hann og alles.. átti að taka nokkra daga... tveim vikum seinna hringdi ég aftur og þá hafði kóðinn bara ekkert verið sendur en gellan sem ég talaði við lét mig fá hann og sagði mér hvernig átti að fara að þessu... en svo kom bara í ljós að þetta vara vitlaus fokkin kóði.. þannig að hún sagðist ætla að biðja um nýjan og hafa svo samband en gerði hún það... neeeeeeeeeeei........ endaði með því að ég sendi email og útskýrði vandamálið.. fékk svo svar í gær.. og kóða, leiðbeiningar og kærar kveðjur.. setti inn kóðann... helvítis fjandans code-friggin-error einu sinni enn........ búin að fá nóg..