þriðjudagur, september 28, 2004

riiiiiiight....


sunnudagur, september 26, 2004

another week of hell

enn einu sinni er ný vika í sjónmáli.. ég er svo innilega ekki að nenna því en ég fæ víst litlu ráðið um það.. mánudagur á eftir að renna upp og honum fylgir skóli og endalaust vesen og ábyggilega nokkrar ávísanir upp á fáránlegar fjárhæðir.. ég á aldrei eftir að kvarta undan ruslpósti og reikningum framar.. mikið betra en þetta rugl... þetter svona.. cest la vie.. ég er alveg að pissa í mig...

laugardagur, september 25, 2004

Zzzzz

ég er svoooooo ógeðslega þreytt að það bara er ekki fyndið.. hélt ég myndi ekki ná að halda mér vakandi í strætó á leiðinni heim úr vinnunni.. (bíllinn bilaði.. startarinn eða eikkað álíka) já, og svo var fimmtán alveg að koma niðrá hlemm og þá sá ég fjarkann leggja af stað... var nánast farin að grenja...
en ég dröslaðist nú samt í bíó með stellu... sama hvað mar er þreyttur, alltaf hægt að fara í bíó... fórum á white chicks sem kom reyndar töluvert á óvart... mjög sniðugt að fara í bíó með ENGAR væntingar.. ;) en í þessari mynd voru eikkur mest scary atriði sem ég hef nokkurn tímann séð.. og ég hef farið í gegnum allan hryllingsmyndarekkann á videoleigunni og það hefur engin áhrif á mig.. en núna áðan var ég sko farin að fela mig bakvið stellu, þetta var svooooooooooooo creepy...
en já, það er blessunarlega komin helgi og ég get ekki beðið eftir að fara uppí rúm og sofa og sofa og sofa... estimated time of going to sleep, 3 minutes... og ekki reyna að ná í mig fyrir klukkan þrjú á morgun...
by the fokkin way, hef fengið nokkrar ávísanir í viðbót... er bara komin með sæmilega upphæð hérna.. *sís* vill eikkur???

fimmtudagur, september 23, 2004

I no longer need to punish, deceive, or compromise myself. Unless, of course, I want to stay employed!

föstudagur, september 17, 2004

money money money

jamm... á þriðjudaginn fékk ég ansi skemmtilegan póst... bréf sem innihélt ávísun upp á 10.000 dollara sem er eikkað í kringum 870.000 krónur... og tvo nákvæmlega eins pakka sem innihéldu nákvæmlega eins skartgripasett.. hálsmen og eyrnalokka í stíl, aðra eyrnalokka og peningaklemmu... og ávísunin og skartgripirnir voru alveg aðskilið...
í dag fékk ég svo aðra ávísun upp á aðra 10.000 dollara sem eru 'faldir' í veski ætluðu mér.. en það er smá surprise.. ávísunin í veskinu gæti hugsanlega turned out to be upp á 2.500.000.. en minimum 10.000... já, svona getur pósturinn komið manni á óvart...

þriðjudagur, september 14, 2004

...

Creativity is great, but plagiarism is faster!

sunnudagur, september 12, 2004

oh yes.. im back..

indeed.. elfa is back.. og mikið er ofboðslega gott að geta bloggað aftur um alla þessa ómerkilegu hluti í lífi mínu.. mar fær vissa útrás með að skrifa allt niður.. losa sig við allt sem er að angra mann eða bara ape-a pínulítið.. kannski losna ég núna við ofnæmið mitt.. sem er fólk.. upp á síðkastið, kannski bara frá því bloggið bilaði.. meina, það var til staðar fyrir en jókst til muna þá.. allavega, ég hef verið með algjört óþol gagnvart fólki.. ég er nottla ein af 'fólki' er svosem hægt að segja og að vissu leyti er ég með ofnæmi fyrir sjálfri mér líka..
mér finnst fólk yfirhöfuð (það eru auðvitað örfáar undantekningar) bara dull as hell.. það er eikkur heiladauði í gangi.. það er eeeeeekki hægt að tala við nokkurn mann um eikkað að viti... þessvegna kannski er ég orðinn mikill aðdáandi innihaldslausra samtala... en það verður líka að vera eikkað meira inn á milli... það bara verður að vera hægt að minnsta kosti að reyna að tala um eikkað annað en hvað þessi eða hinn gaurinn er sætur, hvað á að gera um helgina eða hvað ég sá flottar buxur um daginn.. ég hef reyndar ekki séð flottar buxur í langan tíma, hvað þá bol, peysu eða vottever.. mikið vandamál.. og ég veit nákvæmlega hvað ég þarf að gera um helgar, læra eins og moððerfokker... og varðandi sætu gaurana, þá eru þeir hreinlega alveg horfnir af yfirborði jarðar.. fyrir utan þennan eina sem ég allt í einu 'uppgötvaði' um daginn.. en annars er bara ekki til myndarlegur maður allavega í þessari borg.. prove me wrong people.. please do..
eníveis.. ég ætla að fara að velta mér uppúr þeirri eymd að eiga ekkert líf..

laugardagur, september 11, 2004

testing...

jæja.. athugum hvernig stóri bróðir hefur staðið sig... ef ég næ að publisha þetta þá, í fyrsta lagi verð ég alveg ofurglöð og stend í eilífri þakkarskuld við big bro (sem ég reyndar geri fyrir.. meina, he gave me this.. elfa.is) eníveis.. ef þetta er komið í lag þá fylgja með tvær gamlar færslur, frá því tímabili þegar ég var að reyna að fikta síðuna í gang... hehehe...

samt er ekki svo margt sem er að frétta.. frekar dull líf sem ég reyni að lifa hérna... allavega ekki margt sem ég get sagt núna.. ég fer í skólann, ég fer í vinnuna, ég fer á leikæfingar (reyndar bara ein búin) ég fer á kaffihús og ég sef.. that's basically it..

erla maría farin til svíþjóðarinnar.. sakna hennar ekkert smá.. en hún bloggar á sinn sérstaka hátt og svo fær hún sinn daily dosage af slúðri og slíku í emailum.. hún var eikkað að hugsa um að kíkja heim í byrjun nóvember.. ég hvet ykkur fólk til að hjálpa mér að sannfæra hana um að það sé snilldarhugmynd...

en það eru nottla 'allir' búnir að gefast upp á að kíkja á þessa síðu þarsem hún hefur legið niðri svo lengi að það á enginn eftir að sjá þessa hvatningu.. jæja, sjáum til..

ójá, og ég er alveg fáránlega mikið hrifin af gaur sem ég þekki eila ekki rass og hitti sárasjaldan.. og hann á líklega aldrei eftir að vita af því... :) eða meira :(

ta ta..