mánudagur, ágúst 16, 2004

draumurinn....

þetta var mjög súrt eikkað.. mig dreymdi sko að frændsystkini mín, helga og jóhann, hefðu fengið ný rúm.. alveg rosaleg, huge rúm.. og herbergin fyrir austan eru flest held ég átta fermetrar eða eikkað álíka.. það var eila ekkert pláss fyrir rúmin.. (btw. ég á ekkert herbergi fyrir austan lengur en herbergjafjöldi þeirra er.. 4.. jóhann á núna herbergið mitt... *bitur*) já, allavega.. svo komst ég að því að foreldrar krakkanna, tobba og kalli, hefðu líka fengið nýtt rúm.. alveg risa-fokking-stórt eðalrúm.. og ekki nóg með það heldur hafði mamma fengið eitt slíkt líka... og ég grét og grét og grét og grét og grét af því að ég fékk ekkert rúm og átti ekkert rúm og hafði aldrei átt neitt bévítans rúm... sem er rétt, ég hef aldrei átt rúm.. :( *sniffsniff*

þriðjudagur, ágúst 03, 2004

málning og hársprey..

jújú... svona er lífið spennandi... erlurnar komu í kaffi í gær.. (emá kom með kaffið.. eins og það væri ekki til kaffi hér) svo var bara stuð, horfá o.c. *hrollur*... þurftum bara að vita hvenær væri óhætt að hringja í rönku... ;) eníveis, við vorum bara eikkað að vesenast... allt í einu vorum við farnar að mála gluggasilluna inní herberginu mínu... hún er gul... annars vorum við að hugsa áðan að verða okkur útum fullt af svona prufudollum eða eikkað og taka bara næstu helgi í að drekka vodka og mála herbergið mitt.. eruði með? nóg af veggplássi.. svo er líka eitt stykki loft..og gólf... hehehe...
já.. svo vorum við að 'vera stelpur' í gærkvöldi... greiða hver annari... eða meira svona eipa í hárinu á emá.. misnotuðum hárspreyið aðeins... en það er bara gaman... stelpur.. næst tökum við manicure/pedicure... múhahaha..