sunnudagur, júlí 25, 2004

ammlili búið....

þetta var bara fínasta ammili... erla maría var ekki ánægð með mætingu hjá liðinu... ;) en þeir skemmtilegustu, fallegustu og hreinlega bestu mættu!!! erla m og ranka hjálpuðu mér aðeins... með því að búa til viðbjóðslegustu bollu ever... útlitið var allavega vibbi, skildist að bragðið væri það einnig... svo komu nína, gummi, addi, helga, helgi, gugga, arna og að lokum erla björk þegar hún var búin að vinna... erlurnar gáfu mér ógisslega mikið af dóti.. gegt.. píluspjald og dúkkulísu og reykelsi og geisladisk og orkustein og þá held ég að það sé komið... og nína gaf mér gegt sæta eyrnalokka, svona dingl-lokka.. stuð! addi, helga og gummi splæstu í bland í poka.. arna og gugga gáfu mér rauðvín... ranka 'týndi' víst gjöfinni... ;) einmitt... og melkorka gaf mér líka gjöf.. sendi mér þetta líka fína e-card.. voða skondið... eníveis, ætli ég þurfi ekki aðeins að leggja mig, vera fersk og fín í brúðkaupinu...

föstudagur, júlí 23, 2004

ammlili


jamm.. styttist óðum í ammlilið mitt... nánar tiltekið á morgun bara.. ætla að hafa smá get together... nenni samt eila ekki að senda sms... sé bara til hverjir mæta... segir til um hverjir lesa síðuna... múhahahaha... nei, var búin að nefna það við hluta af leikhópnum.. sendi út nokkur smess á morgun bara... ekki gera neitt fyrr en á allra síðustu stundu.... that's my motto... eða ein version af því... held að þetta verði samt voða rólegt af minni hálfu allavega.. þarf að mæta í brúðkaup í hveragerði klukkan 4 á sunnudag... og þarf svo að druslast í bæinn aftur þannig að það verður heldur ekkert bús fyrir mig í veislunni..
er líklegast bara að fara að 'vinna' hjá frænku minni.. hjálpa henni með valdísi ingu og solis.. laga til og eikkað.. hún sigga er svo sniðug.. eignast barn og þarf að gera eikkura massssssa ritgerð.. og hún er eikkað orðin stressuð með ritgerðina svo ég ætla að reyna að hjálpa henni með heimilið og barnið... finnst voða einkennilegt að kalla það vinnu.. og enn furðulegra að fá laun fyrir það en hún sagðist eikkað ætla að borga mér... veit nottla að ég er broke as usual.. en mér finnst ég ekki alveg geta verið á launum við að hjálpa fjölskyldunni.. ég meina, ég heimtaði alltaf laun fyrir að passa helgu og jóhann en ég fékk þau laun aldrei útborguð um mánaðamót og rak aldrei neitt sérstaklega á eftir því... it's family.. æi, i could go on and on but i don't wanna and u don't wanna...
ég lá andvaka í nótt og var með eikkura geðveika pælingu en nú man ég það ekki... á náttla þá ekkert að vera að tala um það þá en þetta var eikkað svo rosaleg pæling, man það þó... vildi bara deila því með ykkur að ég á þetta til... ;)

sunnudagur, júlí 18, 2004

living again...

ákvað að taka sénsinn og fór með erlu björk í road trip í gær.. ehmm.. fórum á akranes.. stoppuðum við bíldhólsskála (no idea), fórum í stykkishólm ofl.. voða stuð... svo fórum við í öl til erlu maríu.. anný var mætt í bæinn.. chilluðum aðeins hjá emá og fórum svo í bæinn.. dillon er ónýtur!!! kíktum á celtic þar sem voða creepy norðmaður eða eikkað sat yfir okkur... ómögulegt að losna við hann þannig að við reyndum bara að leiða hann hjá okkur.. svo af því að þetta var eina fríhelgin hennar annýjar þá 'fékk hún að ráða' og ætlaði að draga okkur á gaukinn en jibbí jei, það kostaði 1000 kall inn og enginn tímdi því.. yfir götuna á amsterdam og þar kostaði 500 kall inn.. ég átti ekkert 500 kall frekar en 100 kall en ég fékk engu ráðið, anný ætlaði bara að borga fyrir mig.. þetta var sem betur fer voða stutt stopp.. annars hefði ég ábyggilega gerst sek um líkamsárás.. eikkur helvítis belja á fáránlegum pinnahælum trampaði oná tærnar á mér þannig að sér á greyið skónum mínum og tásurnar eru aumar og pínu marblettir á þeim... :( þessi kelling var bara all over the place.. 5 more minutes og hún hefði þurft að láta fjarlægja helvítis pinnana úr eyrunum... svo var það bara hlölli fyrir þessa fjáðu á meðan þessir fátæku (ég) beið og fylgdist með villidýrunum (anný og maggi) háma í sig bátana eins og þau hefðu ekki fengið matarbita vikum saman... og svo looooooksins komst ég heim!!!!!
mamma er að pakka fyrir krítarferðina á morgun... the cow... ætla að fara og angra hana aðeins..

föstudagur, júlí 16, 2004

jeij

 

stella kemur heim á miðvikudaginn... jibbí.. verður komin heim fyrir ammilið mitt... það var annaðhvort að koma heim á miðvikudaginn eða á laugardaginn, ammilisdaginn minn, eikkurn tímann seint um kvöldið... og hún kemur á miðvikudaginn... jeij...
en mamma verður á krít á ammilisdaginn minn... ásamt, systur sinni og tveim börnum hennar, mágkonu þeirra og ég veit ekki hve mörgum af hennar börnum.. og bryndís frænka mín giftir sig daginn eftir, þann 25. júlí.. það verður stuð.. skil ekki þessa áráttu í fjölskyldu minni að þurfa alltaf að gifta sig eða halda uppá eikkur risa-ammili í kringum ammilið mitt.. það er bara ekkert sanngjarnt.. jæja, the pain of being born in the middle of summer.. kannski hefði ég bara átt að bíða meðetta fram í miðjan september eins og planið var... en nei, mér lá eikkað voða mikið á.. og dó næstum í kjölfarið.. geez.. fann einmitt albúm í gær frá því að ég var itzy bitzy lítil, nánar tiltekið 42 sentimetrar og 6 og hálf merkur.. ekkert smá tiny.. ein af mér með svona nýfæddu-barna bleyju og hún nánast coverar mig alveg.. og mamma er ekkert smá sæt á þessum myndum.. 23 ára gömul.. gegt cute.. svo er ein mynd af mér, á öftustu síðunni í albúminu, þar sem ég ligg í vöggunni minni... MEÐ SLEIKJÓ!!!! hver lætur svona lítið barn fá sleikjó??? svo eru gegt sætar myndir af svenna frænda (6 ára at the time) að skipta á mér, klæða mig og solis.. hann kallaði mömmu mína sko mömmu á tímabili þannig að þetta hefur kannski verið eins og að eignast litla systur eða eikkað.. og anna sigga, algjört rassgat, tveggja ára gömul.. bryndís, 4 eða 5 ára.. og hún er að fara að gifta sig eftir nokkra daga... *sniff*
 
eníveis.. sjónvarpsdagskráin að byrja.. múhahaha... endilega kíkiði í heimsókn fólk.. en skoðiði sjónvarpsdagskrána fyrst, hvort það er nokkuð eikkað sem ég er hugsanlega að horfa á.. hehehe..

america's next top model re-run

ég var semsagt að horfa á nátthrafna á skjá einum.. síðasta þáttinn af am. next top model.. sá hann aldrei í den.. en ég hélt með adrienne og ég hreinlega táraðist næstum þegar lakið var rifið niður og myndin af henni birtist.. hún ætlaði að hrynja niður á gólfið mar.. algjört rokk.. vissi nottla að hún hefði unnið en bara að sjá þetta, svipinn á manneskjunni.. allir vælandi.. áhrifamikið.. nettur titringur í hökunni.. þið kannist viðetta.. erla maría er best í þessu.. þegar hún er að leik-gráta.. geez.. snilld að fylgjast með því.. mann langar sjálfan að fara að gráta..  taka utan um hana og hugga hana.. very very powerful.. veitikki hvernig það er þegar hún actually grætur, hef aldrei orðið vör við það that i can remember.. eníveis.. þarf að fara að sofa.. eða reyna það.. hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel undanfarið.. þannig uppgötvaði ég nátthrafna.. :) en ég verð að sofa.. slæ bara höfðinu utaní vegg.. that usually works.. kannski smá kúla þegar mar vaknar en svefn er garanteraður.. so, for now, that's all.. and it wasn't very much..
 
vá hvað þetta banging-head-against-wall útskýrir margt um mig.. *flashing ligthbulb*

miðvikudagur, júlí 14, 2004

bad... very very bad...

ég er atvinnulaus!! fékk þessa líka æðislegu vinnu þrátt fyrir roskilde plön sem lentu á viku sem ég eila varð að vera í vinnunni.. svo kom ég heim af roskilde, varð hundveik.. fór i vinnuna núna fyrst á mánudag.. aðfaranótt þriðjudags var mjög skrautleg, my head and the toilet have become very close.. svo fór ég til læknis í gær og hún bannaði mér að fara í vinnuna.. sagði að ég mætti ekkert gera fyrr en í fyrsta lagi eftir helgi þar sem ég er eila á mörkunum að vera með lungnabólgu eða eikkað álíka.. og b&l hreinlega gat ekki beðið eftir að ég yrði góð.. gat heldur ekki ætlast til þess.. svo ég er atvinnulaus.. og í alvarlega djúpum skít!!!!

mánudagur, júlí 12, 2004

chillandi á kantinum með fullan bílinn af jennnnifer lopezz...

ó nei... me wish... well.. no, not really en það væri samt held ég skárra en the current situation.. síminn stoppar ekki andskotinn hafi það.. og röddin er alveg í fokki.. eikkur gaur sem hringdi minntist jafnvel á það áðan.. eeeehhh, ótei... eníveis.. var í eldhúsinu... þurfti að galdra fram hádegismat úr engu.. eldabuskan fór í frí og þau vissu ekkert hvenær ég kæmi aftur þannig að það var ekkert pantað til að ekkert myndi skemmast og svo mætti mín bara í vinnuna.. sem betur fer hafði brauðpöntun slysat í gegn svo ég hafði það.. þetta reddaðist.. og það verða allir skápar og skúffur fullar af eikkuru matarkyns á morgun svo þetta verður alltílæ.. var dáldið yfirþyrmandi þegar ég mætti í morgun og vissi hreinlega ekkert hvar ég átti að byrja.. alveg lost!!! var eila komin á þá skoðun að það væri best að biðja írisi að reka mig...
afhverju er síminn með þessi læti.. afhverju trúir fólk mér ekki þegar ég segi að þessi eða hinn sé í símanum eða með eikkurn hjá sér eða vottever... erla björk sagði að veikindaröddin mín hljómaði svo einlæg.. ;) en ég meina, afhverju í ósköpunum ætti ég að ljúga að þessu fólki?? ekki græði ég neitt á því..
imaginary scenario : ég: hallóóóóó... (ég svara ekki svona í símann samt, just for the record)man on phone: get ég fengið að tala við jón jónsson? (það vinnur enginn jón jónsson hérna) ég: hann er í símanum... (sénsinn að ég segi bara 'hann er í símanum' og svo ekkert meir. það kemur löng ræða) man on phone hangs up and i laugh and laugh cause jón jónsson isn't on the phone at all... WHY??? what's the point... æi, þetter stupid.. ég er stupid.. ég þarf nauðsynlega að komast aðeins frá símanum og hósta úr mér nokkrum líffærum..

halelúja...

ójá, fer í vinnuna á morgun.. sem er reyndar orðið 'í dag' svo ég þarf að fara að skríða undir sæng.. can't wait to get back.. það skal sko ekkert stöðva mig.. ég hef verið með fullri meðvitund og hitalaus í tvo daga eða svo þannig að ég ætla að drífa mig í vinnuna.. jibbí.. held að ég eigi að vera í mötuneytinu.. ég er allavega ekki alveg komin með símarödd aftur.. eða bara rödd yfirhöfuð.. æ, vottever, eins og fólk hafi aldrei heyrt í raddlausri manneskju áður.. ég get alveg sagt 'b&l góðan dag' og 'augnablik'.. sko, þetta verður æði.. en ég ætla að skríða uppí rúm.. góða nótt og alles.. don't let the bed bugs bite.. unless that's perhaps a fetish of yours.. then let them bite, i don't care.. i'm going to work.. eitra fyrir fólki.. jei!!!!!!!!!!

laugardagur, júlí 10, 2004

*cough*

þetter allt á góðri leið.. nánast hitalaus.. hóstinn miklu betri (enda búin að æfa mig gegt mikið.. múhahaha..) og röddin næstum komin aftur.. mikið verð ég fegin að komast í vinnuna aftur.. pínu stressuð en get samt ekki beðið.. jæja.. nennekkað skrifa meira.. back to the tv... bu-bye!!!

fimmtudagur, júlí 08, 2004

sick as a dog... and can't sleep..

afhverju er sagt 'sick as a dog' anyway? hver er eila meiningin á bakvið það? hvernig sem það er þá er ég alveg fár-fucking-veik.. var ömurleg síðasts sólarhringinn á hróarskeldu.. hóst hóst og sniff sniff... var reyndar ábyggilega ömurleg fyrir það því ég var allan tímann með massa samviskubit yfir því að vera þarna... fannst ég eiga að vera í vinnunni... en festival-ið var æði.. óðum drullu upp að hnjám og fengum yfir okkur rigningardembur sem mar hélt að væri haglél, droparnir voru svo rosalegir.. harðir.. en ekki kaldir samt, thank god.. þá væri ég líklega ekki á lífi.. eníveis, ég er ekki á leiðinni að fyrirgefa bowie að beila svona en morrissey var brilliant.. massa fit old guy.. (skipti nokkrum sinnum um skyrtu)
svo lentum við á á miðnætti á sunnudag en við vorum á danmerkurtíma þannig að klukkan var actually 2 og fjögur þegar ég loksins kom heim og skreið uppí rúmið mitt.. vaknaði svo alveg sárlasin um morguninn og ég átti að mæta í vinnuna.. god dammit hvað ég var reið.. ég var búin að bíða í heila viku eftir því að komast aftur þangað... þó roskilde hafi verið æði þá actually hugsaði ég oft 'kræst hvað ég vildi að þetta væri búið svo ég komist heim í sturtu, rúmið mitt og í vinnuna'
en ég fór ekki, ætlaði að losa mig alveg við þessa pest og mæta svo hress og kát á þriðjudeginum.. núna er tæknilega séð kominn fimmtudagur og ég hef ekkert farið í vinnuna.. hóstinn versnar bara.. sömuleiðis kvefið og hitinn ríkur upp as we speak.. as i speak... ehh.. write.. ég er með gegt tak í bakinu af insane hóstaköstum sem leiða út í að ég æli eins og ég veit ekki hvað.. það er ekkert eftir í líkama mínum til að æla.. ég veit ekki hvort það hefur liðið yfir mig en ég hef orðið vör við nokkur black-out.. t.d. ætlaði ég að hringja í bossann minn og láta vita að ég kæmist ekki í vinnuna, tók upp símann og rankaði svo við mér eikkurum hálftíma síðar enn með blessaðan símann í hendinni.. það held ég að hafi aldrei gerst áður... eða jú.. eikkurn tímann þegar ég var lítil var ég með svo mikinn hita að ég datt út og hélt síðan að ég hefði sofið í kannski klukkutíma en það reyndist síðan vera komið langt fram á næsta dag... eða var það öfugt.. ég er ekki með neitt sérstaklega gott minni... reyndar man ég nánst ekkert fyrir níu ára aldur eða svo.. smá brot og sona.. kannski blocked memories... eníveis... ég ætla að gera enn eina tilraun til að sofa eikkvað.. bæti kannski enn einum koddanum við og ég sef þá sitjandi.. tek fleiri verkjatöflur og þamba smá hóstasaft.. held það sé smá lögg enn eftir..

jæja.. þetta var einstakleg entertaining færsla.. á eftir að svæfa einhvern.. vildi að það væri ég.. hef ofboðslega lítið sofið undanfarna tíu daga eða svo..