laugardagur, júní 26, 2004

countdown

á morgun, sunnudaginn 27. júní, klukkan 16:10 mun flugvél með mig og erlu björk innanborðs yfirgefa landið og stefna til danmerkur.. jújú, það er komið að því.. og ég er búin að troða ofsalega miklu drasli í bakpoka, búin að finna svefnpokann minn og tjaldið er ready.. mamma er búin að bölsótast mikið yfir því að ég hafi keypt þetta fína tjald og ætli svo ekkert að koma með það heim.. en ég verð, samkvæmt henni, að koma heim með svefnpokann sem ég fékk í fermingagjöf.. held reyndar að ég hafi fengið tvo eða þrjá svefnpoka þann dag.. eníveis.. ætla að fara yfir þetta, athuga hvort ég sé ekki með allt og solis.. svo ætla ég að fara að lúlla...

hafið það gott meðan ég er í burtu.. :) will only be a week..

föstudagur, júní 25, 2004

dummdidumm...

actually.. those papers almost filed themselves.. amazing.. ;)

ég var semsagt búin að ákveða að fara á blessað reunion-ið, tilkynnti komu mína og alles.. varð svo veik og sá ekki fram á að komast þannig að ég afboðaði mig.. svo bara er ég orðin nokkuð góð og reunion-ið í kvöld.. en ég bara get ekki farið að afboða afboðið er það? ég sem var orðin svo helvíti forvitin um þetta allt saman... fjandans vesen... hef ekki séð eða talað við þetta fólk í fimm ár.. talað við kannski 5 manneskjur af þessum 30 svona af og til.. og tveir af þessum fimm eru frændur mínir.. hvernig ætli hafi annars ræst úr þessu liði?? nú er forvitnin alveg að drepa mig... hingað til hefur mér verið alveg andskotans sama.. argh!! should i crash the party? mwahahaha...
á þessum tíma vorum við yfirleitt fjórar saman.. ég (Sigrún), eva, bjarney og telma (BEST.. i know.. lame..) og hjá okkur var aðal djókið quote bíómyndunum austin powers og romy and michelle's high school reunion.. (já.. again.. lame... en það er ekki svo margt sem mar hefur að gera uppí sveit) kannski ætti ég að taka smá romy and michelle á þetta.. mæta á þyrlu eða eikkað... eða bara mæta með j.t. uppá arminn... múahahaha...
erla maría sagði halli víst að hún hefði lánað hann á reunion.. hefði viljað sjá framan í hann.. hún er annars að spá í að stofna bisness meðessu.. leigja justin timberlake út við hin ýmsu tækifæri... 'er búist við lélegri mætingu? segðu bara að justin mæti!!!'

eníveis.. hef ekki tíma í þetta rugl... papers may file themselves but the phone will not answer itself.. dammit!!

back at work.. ;)

getið ekki ímyndað ykkur hvað ég er fegin að vera í vinnunni... jafnvel þótt síminn sé að gera mig geðveika og hausinn á mér sé að springa.. þetter samt brilliant..
pæliði í þessari sjúku rigningu.. ég gæti hugsað 'hva.. ekkert mál.. er að fara til útlanda' nema hvað veðrið er víst svipað í danmörku.. :( það er dáldið skítt... jæja.. ekkert mál.. við stella keyptum okkur 'emergency poncho' í edinborg.. eitt pund fyrir þennan líka massafína regnstakksponcho... ;)
jæja, ætlað halda áfram.. these papers don´t file themselves..

fimmtudagur, júní 24, 2004

...veikindi...

ég hata að vera veik.. sérstaklega þegar ég hef bara engan tíma til þess.. ég þarf að vinna.. ég þarf að undirbúa danmerkurferð.. ég þarf að gera margt og mikið og ég get ekki gert nokkurn skapaðan hlut með höfuðið oní klósetti.. ekki sátt... veiktist á mánudagskvöld, hélt ég hefði fengið netta matareitrun eða eikkað (pastasalatið mitt var ekki alveg jafn ferskt og ég hefði viljað..) en svo var ég orðin bara ágæt í gær og ákvað að nýta frímiðann minn á chronicles of riddick.. var næstum því búin að beila á því að fara FRÍTT Í BÍÓ!!!.. eníveis.. við erla maría fórum á riddick og guð minn almáttugur, þetta var einhver sú alversta mynd sem ég hef nokkurn tímann séð.. og hef ég séð þær ansi margar.. en addi og helga voru þarna og fannst myndin víst algjört rokk.. jæks..
en jæja, svo fór ég bara heim í mesta sakleysi og ætlaði nú að drífa mig í rúmið til að vera fersk og jolly þegar ég myndi mæta í vinnuna.. var með helvíti slæman hausverk svo ég ákvað að lalla inn á bað og taka inn eina verkjatöflu.. svo bara var ég byrjuð að æla eins og ég fengi borgað fyrir.. nasty!! vakti mömmu og alles... eníveis.. hef verið nokkuð góð mestan part dagsins svo stefnan er sett á vinnuna í fyrramálið.. aldrei hélt ég að ég myndi nú sakna þess að svara í síma.. ;)

mánudagur, júní 21, 2004

Work... as usual...

þarf að vinna til 6.. :( ragnheiður = vond!!!

en svona til að segja eikkað skemmtilegt þá vann ég tvo miða á chronicles of riddick á miðvikudag.. stella er voða happy... hún er búin að vera mjöööööög spennt yfir þessari mynd... eða, ekki myndinni sjálfri heldur vin diesel.... og ég nottla líka... en hef ekki talað alveg jafn mikið um það og hún stella yndið mitt... eníveis.. það verður bara stuð... alltaf gott að komast frítt í bíó... ;) ætlað halda áfram að vinna... later peebs..

föstudagur, júní 18, 2004

Reunion...



já.. elfa litla er að fara á reunion.. very very sad moment.. erla maría var búin að lána mér justin timberlake look-a-like bróður sinn til að lífga aðeins uppá þetta en þetta er víst MAKA-laust reunion.. ekki það að j.t. bróðir erlu sem heitir hallur sé maki minn.. pluh.. og mér líkar hreinlega bara of vel við hall til að leggja þetta á hann... þrátt fyrir að hann sé alveg eins og justin.. ég bara tek inn nokkrar róandi og skelli í mig nokkrum bjórum og reyni að þrauka í nokkra tíma.. hugga mig bara við það að ÉG ER AÐ FARA Á HRÓARSKELDU!!!!
argh.. mikið að gera í vinnunni.. búið í bili...

miðvikudagur, júní 16, 2004

laaaaaaaangur rúntur... ;)

var yfirsendill í dag... ;) fékk glænýjan bíl til umráða og síma og alles og 'yfirsendlaðist' um alla borgina í allan dag... voða stuð... ég elska þessa vinnu... þó að ég sé stundum ómöguleg í því að svara í síma... *sís*

(short break)

(komiiiiiin!!!)

þið segið það... mér hefur verið sagt "ég þarf ekkert að kommenta.. þú ert komin heim."... nei.. það er ekki svo.. ég heimta komment..

eníveis.. þarf alveg obbsalega að komast í sturtu.. svo hef ég hugsað mér að fara að heiman.. hugsanlega setjast niður með bjór einhversstaðar í borginni.. skál í boðinu segi ég þá bara...

þriðjudagur, júní 15, 2004

dæmi um hvað fjölskylda mín er trufluð...

jájá.. frændur mínir blessaðir skelltu sér eikkurt austur á land til að skoða eitt stykki vörubíl.. eins og það sé ekki nógu slæmt eitt og sér heldur felst miklu meira í þessari sögu.. ykkur finnst þetta kannski ekkert en here it goes.. þeir yfirgáfu semsagt heimili sín um átta að kvöldi föstudagsins 11. júní og skutluðust austur á land.. það var víst ekkert varið í þennan vörubíl svo þeir héldu heim á leið... hringveginn.. og voru komnir aftur heim til konu og barna um ellefu leytið á laugardagskvöldinu.. eftir að hafa farið fuckin hringinn í kringum landið.. það er ekki í lagi með þessa menn.. ég meina, óli keypti eikkað sona lyftu-thingerí til að sleppa við að klifra upp á þak á húsinu til þess að ná í kettina.. þeir áttu eikkura eldgamla rútu sem kom ekki að nokkru gagni nema sem playground fyrir krakkana.. þeir losuðu sig á endanum við hana og bara daginn eftir eða eikkað álíka þá skruppu þeir eikkvað að heiman og komu svo til baka plús eitt stykki alveg nákvæmlega eins rúta..
ég dýrka fjölskylduna mína en guð minn almáttugur, ég botna ekkert í þeim..

me at work

sunnudagur, júní 13, 2004

*geisp*

búin að sofa í mestallan dag... hafði ekkert annað að gera.. ekkert í sjónvarpinu.. (ójá, það komst í lag... yndislega, æðislega sjónvarpið mitt... never again shall i utter a bad word about thee..)

eníveis, fórum út í gær við erla björk.. voða gaman.. nema, eins og erla björk ein er fær um, um leið og hún er búin að drekka ákveðið mikið fer hún að hella niður.. hún fór á barinn að kaupa bjór, kom til baka og af einhverjum ástæðum hreinlega bara hitti hún ekki á borðið og bjórinn MINN fór út um allt.. var rennandi blaut.. pluh.. hún var nú svo sæt að hún splæsti í nýjan bjór handa mér.. hún getur verið svo yndisleg.. mússí mússí..
en þetta var áhugavert kvöld.. komumst að því að grænlenskir (eða eikkað álíka) karlmenn eru á engan hátt áhugaverðir.. múhahaha..

æi.. þreytt.. nennekkaðskrifameir.. seinna... bu-bye

laugardagur, júní 12, 2004

Þessi er góður.. Múahaaha

You are a Bassist!
You are a Bassist!


What would you be in a rock band?
brought to you by Quizilla

föstudagur, júní 11, 2004

því það er komin helgi.....

já.. loksins loksins er blessuð helgin komin... ekki það að ég búist við því að hún verði eitthvað merkileg.. hef hugsað mér að gera sem minnst.. ætla nú samt aðeins að kíkja út í kvöld með stellu og máski erlu björk.. bara þetta usual, kíkjá dillon og fá sér bjór og spjalla.. (og núorðið : gefast upp og beila þegar húsið fyllist af fólki sem virðist oddly out of place... sem máski hugsar það sama um mig...)

a bad thing has happened.... my t.v. died... eða sko.. það er hljóð... en engin mynd... eða jú.. kemur stundum smá mynd og gefur manni sona false hopes um að t.v-ið sé bara eikkað pínulítið að ape-a en svo fer hún aftur og tárin byrja að vætla niður vangann..


múahahahaha... mér skilst að ég eigi 'leynilegan aðdáanda'.... múahahaha....

nú er þessari einkar ómerkilegu færslu lokið.. færið músina efst uppí hægra hornið á skjánum og ýtið á x-ið.. ekkert meira að sjá.. shoooo.. sko.. burt!!

fimmtudagur, júní 10, 2004

dúúúúleg...

mín var afskaplega dugleg við að skemmileggja starfsemi b&l í dag... byrjaði á því að eitra dáldið fyrir starfsmönnum og fór svo yfir í það að rugla upp símkerfinu þannig að þegar alli hringdi og vildi tala við jón á verkstæðinu gaf ég honum samband við gunnu í bókhaldinu.. (ath. nöfnum viðkomandi aðila hefur verið breytt af tillitsemi við fjölskyldur þeirra)

hættessu.. farin útí búð if anyone needs me... múahahaha...

úps!!!

ég er að skemmileggja allt í vinnunni... vill eikkur koma og hjálpa mér...

þriðjudagur, júní 08, 2004

múahaha

sweeeeeet..... elfa litla komin með þessa líka fínu vinnu... hjá b&l mar... duuuuude... byrja bara á morgun... múahahahha... ég verð á hærri launum en þið öll... múahaha.. var atvinnulaus klukkan eitt, komin með vinnu korter yfir... múahahaha... chilla í sumar við að svara í síma.. skutlast með eikkur skjöl útum allan bæ.. kannski eikkað að dunda mér í eldhúsinu.. gaman... múahaha..

mánudagur, júní 07, 2004

Færsla nr. 170

hef svosem ekkert að segja.. hitti adda og helgu aftur í gær... og ragga og iðu.. smá partí heima hjá helgoadda og svo kíktum við á dillon.. veit ekki hvað var gert eftir það.. beilaði.. ég held ég hafi nú ekki tognað beinlínis en þegar ég var að fara úr ammilinu hans jökla fann ég fyrir eikkuru massa sambandsleysi í hnénu á mér og er búin að vera bara haltrandi síðan.. ógisslega vont..
ég fæ að vita á morgun hvort ég fæ vinnu á lauga-ás eða b&l... hið síðarnefnda er reyndar hæpið þar sem það voru eikkurar vikur þar sem afleysingamanneskja (aka, ég þá) yrði að vera og ein af þeim vikum er vikan í kringum hróarskeldu.. það átti samt eikkað að athuga hvort það væri eikkað hægt að redda því... þá væri það fín vinna, svara í síma, rúnta um með eikkur skjöl og smyrja brauð.. ;) annars er lauga-ás frekar hæpið líka þarsem ég hef aldrei unnið við neitt slíkt.. en það kemur allt í ljós eftir nokkra klukkutíma.. vildeila geta farið bara aftur í tígrisbæ.. en ég hef svosem ekkert athugað hvort það er hægt..
pluh di pluh..

btw.. þarf að byrja á núlli...

laugardagur, júní 05, 2004

ævintýri í miðbænum...

jújú... það getur verið spennandi að fara niðrí bæ.. ég plataði erlu maríu með mér uppí grafarvog að kíkja á fyrrverandi vinnufélaga í lokagrillpartíítr.. stoppuðum alveg ofboðslega örstutt.. svo ákvaðum við að kíkja aðeins á dillon.. aaahhh, langþráð heimsókn.. en það var voða lítið að gerast þar.. dillon er orðinn aðeins of kúl eikkað... ekki lengur tjill pleis til að spjalla yfir bjór.. eníveis beiluðum þaðan á endanum og fengum okkur göngutúr og náðum svo í bílinn og tókum laugara.. mikið ofboðslega vorkenni ég eiganda þessa silfraða yaris.. vorum nebbla að keyra og þarna voru tveir gaurar að leika sér að svona tíu metra háum stirlasa (ég veit ekkert hvernig stirlasi er skrifað og mér gæti hreinlega ekki verið meira sama..)en já, úpsídeisí, mín ákvað alltíeinu að bakka dáldið snögglega því stirlasinn fór að halla dáldið og lenti síðan á eina bílnum sem var þarna nálægt, blessaða silfraða yaris-inum.. en það munaði afskaplega litlu að hann myndi lenda á hvítum escort.. ég hafði vit á því að bakka aðeins (ja, við erla ákváðum í sameiningu að það væri sniðugt) og þeir snéru honum oggopínulítið áður en hann féll.. phew.. samvinna.. svo hlupu þeir í burtu og mín var föst.. svo bakkaði ég bara þangað til ég kom að stæði, lagði og við skelltum okkur inn á port city java og fengum okkur kaffi.. fórum svo aftur úti bíl og ÉG FÉKK AÐ KEYRA UPP LAUGAVEGINN!!! nenntekkað bakka meira.. múhahaha.. sagan búin.. varettekki skemmtilegt.. i think i've said this before, i don't really have a way with words.. *sís*

jamm.. ætli ég fari ekki að lúlla (með grímuna mína.. hehehe).. þarf að skutlast í ammili í hveragerði á morgun.. spurning hvort ég þurfi að byrja á núlli.. nánari útskýrin : veigar sendi sms 'ætli pabbi komi ekki á morgun'.. og ég hef ekki séð jökul (aka 'pabbi') síðan ég var 5 eða 6 ára.. þannig að það eru eikkur 15 ár (segið svo að ég sé ekki góð í stærðfræði.. haha.. in your face stærðfræðikennari.. í fleirtölu, þeir hafa verið nokkrir *sís*).... og mér finnst þessi sífellt hækkandi tala afar skemmtileg... ég hef voða lítinn áhuga á að breyta þessu.. fólki finnst þetta alltaf jafn merkilegt.. það skilur enginn hvað mér er mikið sama, hvað þetta skiptir mig litlu máli.. eníveis, líkurnar á því að jökull verði þarna á morgun eru samt afskaplega litlar.. strákarnir hafa haldið uppá sitthvorn ammilisdaginn síðan ég kynntist þeim (annar átti nú ammili meðan ég var úti, veit ekki hvernig það var)og svo fluttu þau og allir að hjálpa til... í þessi þrjú skipti sem hugsanlegt var að ég myndi rekast á hann hefur alltaf eikkað 'komið uppá'.. am i this scary? múahahaha..

æ já, MIG VANTAR VINNU!!!!!! ég vil ekki vera send austur.. ég vil það ekki... jæja, gangi þeim þá vel að ná mér, binda mig og kefla.. they're gonna need it..

föstudagur, júní 04, 2004

ooooooooooooooohhhhhhhh

skrifaði entry en heimska tölvan eyðilagði það... ég neita að skrifa það aftur... basically, ég er þreytt aþþí það er svo ógisslega bjart alltaf, fór í heimsókn í tígrisbæ *sniffsniff*, var boðið í grillveislu ítr en kemst ábyggilega ekki þar sem ég er bíllaus, ég, erla björk og stella erum á fullu að plana roskilde, smá vesen með flug en það bjargast, ætla aðeins að loka augunum í smá stund.. myrkur takk!!!! pluh..

fimmtudagur, júní 03, 2004

Pluh..

það er búið að vera ansi mikið að gera... þrjú fermingarbörn (samtals fimm veislur, strangely enough.. og sú sjötta um helgina.. i'm staying away).... kirkjan var horror.. það var svoooo vibbalega heitt að ég hélt hreinlega að ég myndi ekki lifa þetta af... ég var eins og lítill krakki 'má ég fara núna?' 'erettekkað verða búið?' 'hvað er mikið eftir?' 'má ég fara þegar þetta er búið?' hiti fer alveg sick illa með mig.. mér skilst að ég hafi alltaf verið svona.. hreinlega stundum orðið veik.. fáránlegt.. eníveis.. þarf að halda áfram að leita að vinnu.. :(