laugardagur, nóvember 20, 2004

nick a msn..

litla frænka mín.. ath!! LITLA frænka mín er með yfirskriftina 'lífið er eins og teningur... alltaf best að fá sex..' á msn.. hún er 12 ára!!! TÓLF FOKKIN ÁRA!!! eða er hún orðin 13??? geez.. ég er ekki alveg með það á hreinu... á svo ofboðslega mörg frændsystkini að ég næ bara ekki að fylgjast með hvað þau eru gömul... fyrir mér eru helga og jóhann alltaf 6 og 8 ára eða eikkað.. en þau eru actually... uuu... sko... eeeee... 12 og 14.. i think... mér finnst þetta ekkert sniðugt... ég er orðin alveg ógisslega gömul.. bráðum þarf ég á göngugrind að halda... falskar tennur... fjólublátt gömlukellingahár... vakna fimm sinnum á nóttu til að sniglast á klóstið... ef ég næ þangað... *sniff* þetter ekkert sanngjarnt... æi, hvað er ég að rugla.. ég er 21.. it's not the end of the world... en þegar ég verð þrítug... þá kemur sko annað hljóð í skrokkinn... þá fer mar bara að undirbúa endalokin... eða svo segir veigar...