sunnudagur, september 12, 2004

oh yes.. im back..

indeed.. elfa is back.. og mikið er ofboðslega gott að geta bloggað aftur um alla þessa ómerkilegu hluti í lífi mínu.. mar fær vissa útrás með að skrifa allt niður.. losa sig við allt sem er að angra mann eða bara ape-a pínulítið.. kannski losna ég núna við ofnæmið mitt.. sem er fólk.. upp á síðkastið, kannski bara frá því bloggið bilaði.. meina, það var til staðar fyrir en jókst til muna þá.. allavega, ég hef verið með algjört óþol gagnvart fólki.. ég er nottla ein af 'fólki' er svosem hægt að segja og að vissu leyti er ég með ofnæmi fyrir sjálfri mér líka..
mér finnst fólk yfirhöfuð (það eru auðvitað örfáar undantekningar) bara dull as hell.. það er eikkur heiladauði í gangi.. það er eeeeeekki hægt að tala við nokkurn mann um eikkað að viti... þessvegna kannski er ég orðinn mikill aðdáandi innihaldslausra samtala... en það verður líka að vera eikkað meira inn á milli... það bara verður að vera hægt að minnsta kosti að reyna að tala um eikkað annað en hvað þessi eða hinn gaurinn er sætur, hvað á að gera um helgina eða hvað ég sá flottar buxur um daginn.. ég hef reyndar ekki séð flottar buxur í langan tíma, hvað þá bol, peysu eða vottever.. mikið vandamál.. og ég veit nákvæmlega hvað ég þarf að gera um helgar, læra eins og moððerfokker... og varðandi sætu gaurana, þá eru þeir hreinlega alveg horfnir af yfirborði jarðar.. fyrir utan þennan eina sem ég allt í einu 'uppgötvaði' um daginn.. en annars er bara ekki til myndarlegur maður allavega í þessari borg.. prove me wrong people.. please do..
eníveis.. ég ætla að fara að velta mér uppúr þeirri eymd að eiga ekkert líf..