fimmtudagur, júlí 08, 2004

sick as a dog... and can't sleep..

afhverju er sagt 'sick as a dog' anyway? hver er eila meiningin á bakvið það? hvernig sem það er þá er ég alveg fár-fucking-veik.. var ömurleg síðasts sólarhringinn á hróarskeldu.. hóst hóst og sniff sniff... var reyndar ábyggilega ömurleg fyrir það því ég var allan tímann með massa samviskubit yfir því að vera þarna... fannst ég eiga að vera í vinnunni... en festival-ið var æði.. óðum drullu upp að hnjám og fengum yfir okkur rigningardembur sem mar hélt að væri haglél, droparnir voru svo rosalegir.. harðir.. en ekki kaldir samt, thank god.. þá væri ég líklega ekki á lífi.. eníveis, ég er ekki á leiðinni að fyrirgefa bowie að beila svona en morrissey var brilliant.. massa fit old guy.. (skipti nokkrum sinnum um skyrtu)
svo lentum við á á miðnætti á sunnudag en við vorum á danmerkurtíma þannig að klukkan var actually 2 og fjögur þegar ég loksins kom heim og skreið uppí rúmið mitt.. vaknaði svo alveg sárlasin um morguninn og ég átti að mæta í vinnuna.. god dammit hvað ég var reið.. ég var búin að bíða í heila viku eftir því að komast aftur þangað... þó roskilde hafi verið æði þá actually hugsaði ég oft 'kræst hvað ég vildi að þetta væri búið svo ég komist heim í sturtu, rúmið mitt og í vinnuna'
en ég fór ekki, ætlaði að losa mig alveg við þessa pest og mæta svo hress og kát á þriðjudeginum.. núna er tæknilega séð kominn fimmtudagur og ég hef ekkert farið í vinnuna.. hóstinn versnar bara.. sömuleiðis kvefið og hitinn ríkur upp as we speak.. as i speak... ehh.. write.. ég er með gegt tak í bakinu af insane hóstaköstum sem leiða út í að ég æli eins og ég veit ekki hvað.. það er ekkert eftir í líkama mínum til að æla.. ég veit ekki hvort það hefur liðið yfir mig en ég hef orðið vör við nokkur black-out.. t.d. ætlaði ég að hringja í bossann minn og láta vita að ég kæmist ekki í vinnuna, tók upp símann og rankaði svo við mér eikkurum hálftíma síðar enn með blessaðan símann í hendinni.. það held ég að hafi aldrei gerst áður... eða jú.. eikkurn tímann þegar ég var lítil var ég með svo mikinn hita að ég datt út og hélt síðan að ég hefði sofið í kannski klukkutíma en það reyndist síðan vera komið langt fram á næsta dag... eða var það öfugt.. ég er ekki með neitt sérstaklega gott minni... reyndar man ég nánst ekkert fyrir níu ára aldur eða svo.. smá brot og sona.. kannski blocked memories... eníveis... ég ætla að gera enn eina tilraun til að sofa eikkvað.. bæti kannski enn einum koddanum við og ég sef þá sitjandi.. tek fleiri verkjatöflur og þamba smá hóstasaft.. held það sé smá lögg enn eftir..

jæja.. þetta var einstakleg entertaining færsla.. á eftir að svæfa einhvern.. vildi að það væri ég.. hef ofboðslega lítið sofið undanfarna tíu daga eða svo..