sunnudagur, júlí 18, 2004

living again...

ákvað að taka sénsinn og fór með erlu björk í road trip í gær.. ehmm.. fórum á akranes.. stoppuðum við bíldhólsskála (no idea), fórum í stykkishólm ofl.. voða stuð... svo fórum við í öl til erlu maríu.. anný var mætt í bæinn.. chilluðum aðeins hjá emá og fórum svo í bæinn.. dillon er ónýtur!!! kíktum á celtic þar sem voða creepy norðmaður eða eikkað sat yfir okkur... ómögulegt að losna við hann þannig að við reyndum bara að leiða hann hjá okkur.. svo af því að þetta var eina fríhelgin hennar annýjar þá 'fékk hún að ráða' og ætlaði að draga okkur á gaukinn en jibbí jei, það kostaði 1000 kall inn og enginn tímdi því.. yfir götuna á amsterdam og þar kostaði 500 kall inn.. ég átti ekkert 500 kall frekar en 100 kall en ég fékk engu ráðið, anný ætlaði bara að borga fyrir mig.. þetta var sem betur fer voða stutt stopp.. annars hefði ég ábyggilega gerst sek um líkamsárás.. eikkur helvítis belja á fáránlegum pinnahælum trampaði oná tærnar á mér þannig að sér á greyið skónum mínum og tásurnar eru aumar og pínu marblettir á þeim... :( þessi kelling var bara all over the place.. 5 more minutes og hún hefði þurft að láta fjarlægja helvítis pinnana úr eyrunum... svo var það bara hlölli fyrir þessa fjáðu á meðan þessir fátæku (ég) beið og fylgdist með villidýrunum (anný og maggi) háma í sig bátana eins og þau hefðu ekki fengið matarbita vikum saman... og svo looooooksins komst ég heim!!!!!
mamma er að pakka fyrir krítarferðina á morgun... the cow... ætla að fara og angra hana aðeins..