föstudagur, júlí 16, 2004

jeij

 

stella kemur heim á miðvikudaginn... jibbí.. verður komin heim fyrir ammilið mitt... það var annaðhvort að koma heim á miðvikudaginn eða á laugardaginn, ammilisdaginn minn, eikkurn tímann seint um kvöldið... og hún kemur á miðvikudaginn... jeij...
en mamma verður á krít á ammilisdaginn minn... ásamt, systur sinni og tveim börnum hennar, mágkonu þeirra og ég veit ekki hve mörgum af hennar börnum.. og bryndís frænka mín giftir sig daginn eftir, þann 25. júlí.. það verður stuð.. skil ekki þessa áráttu í fjölskyldu minni að þurfa alltaf að gifta sig eða halda uppá eikkur risa-ammili í kringum ammilið mitt.. það er bara ekkert sanngjarnt.. jæja, the pain of being born in the middle of summer.. kannski hefði ég bara átt að bíða meðetta fram í miðjan september eins og planið var... en nei, mér lá eikkað voða mikið á.. og dó næstum í kjölfarið.. geez.. fann einmitt albúm í gær frá því að ég var itzy bitzy lítil, nánar tiltekið 42 sentimetrar og 6 og hálf merkur.. ekkert smá tiny.. ein af mér með svona nýfæddu-barna bleyju og hún nánast coverar mig alveg.. og mamma er ekkert smá sæt á þessum myndum.. 23 ára gömul.. gegt cute.. svo er ein mynd af mér, á öftustu síðunni í albúminu, þar sem ég ligg í vöggunni minni... MEÐ SLEIKJÓ!!!! hver lætur svona lítið barn fá sleikjó??? svo eru gegt sætar myndir af svenna frænda (6 ára at the time) að skipta á mér, klæða mig og solis.. hann kallaði mömmu mína sko mömmu á tímabili þannig að þetta hefur kannski verið eins og að eignast litla systur eða eikkað.. og anna sigga, algjört rassgat, tveggja ára gömul.. bryndís, 4 eða 5 ára.. og hún er að fara að gifta sig eftir nokkra daga... *sniff*
 
eníveis.. sjónvarpsdagskráin að byrja.. múhahaha... endilega kíkiði í heimsókn fólk.. en skoðiði sjónvarpsdagskrána fyrst, hvort það er nokkuð eikkað sem ég er hugsanlega að horfa á.. hehehe..