...veikindi...
ég hata að vera veik.. sérstaklega þegar ég hef bara engan tíma til þess.. ég þarf að vinna.. ég þarf að undirbúa danmerkurferð.. ég þarf að gera margt og mikið og ég get ekki gert nokkurn skapaðan hlut með höfuðið oní klósetti.. ekki sátt... veiktist á mánudagskvöld, hélt ég hefði fengið netta matareitrun eða eikkað (pastasalatið mitt var ekki alveg jafn ferskt og ég hefði viljað..) en svo var ég orðin bara ágæt í gær og ákvað að nýta frímiðann minn á chronicles of riddick.. var næstum því búin að beila á því að fara FRÍTT Í BÍÓ!!!.. eníveis.. við erla maría fórum á riddick og guð minn almáttugur, þetta var einhver sú alversta mynd sem ég hef nokkurn tímann séð.. og hef ég séð þær ansi margar.. en addi og helga voru þarna og fannst myndin víst algjört rokk.. jæks..
en jæja, svo fór ég bara heim í mesta sakleysi og ætlaði nú að drífa mig í rúmið til að vera fersk og jolly þegar ég myndi mæta í vinnuna.. var með helvíti slæman hausverk svo ég ákvað að lalla inn á bað og taka inn eina verkjatöflu.. svo bara var ég byrjuð að æla eins og ég fengi borgað fyrir.. nasty!! vakti mömmu og alles... eníveis.. hef verið nokkuð góð mestan part dagsins svo stefnan er sett á vinnuna í fyrramálið.. aldrei hélt ég að ég myndi nú sakna þess að svara í síma.. ;)

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim