sunnudagur, mars 21, 2004

BROTTFÖR KLUKKAN 15:00, FÖSTUDAGINN 26.MARS..... þetta verður geðveiki... í gær var kveðjudjamm á dillon... voða gaman... þetta verður rosa ævintýri hjá okkur.. verðum í london yfir helgina og förum svo mjög líklega með lest til edinborgar á mánudeginum.. jibbí.. ég hef aldrei farið í lest... og varla flugvél heldur.. nema til vestmanneyja með sona mini flugvél.. ég meina, ég man ekkert eftir þessum flugferðum frá því ég var 4 ára... eða þessu blessaða skipi, 'Prinsessa Marissa' held ég að það hafi heitið... ekki sanngjarnt.. :( eníveis.. fór austur í dag til að kveðja alla.. fór fyrst heim í sveitina.. helga yndið mitt grét svo þegar ég fór að ég var alveg að deyja... læddust nokkur tár niður kinnarnar.. dýrka þetta barn og á eftir að sakna hennar svo mikið.. og þeirra allra.. ég fer nú ekki oft þangað en það var samt massasárt að keyra í burtu og vita að ég myndi ekkert sjá þennan stað í dáldinn tíma.. missa alveg af sumrinu og heyskapnum og öllu... sauðburðinum.. *sniff* missi líka af því þegar sigga frænka eignast sitt fyrsta barn.. en það kemur annað sumar og það fæðast fleiri lömb.. ég fæ ábyggilega myndir af siggu og ?.... this is way to good to pass up.... jafnvel þó við séum ekki einu sinni komnar með íbúð... ;) eins og ég sagði, ævintýri...