miðvikudagur, febrúar 04, 2004

ég get ekki fengið nokkurn skapaðan hlut til að virka í þessari blessaðri tölvu... ég vildi að ég væri tölvunörd... en þar sem mér er stundum sagt að ég sé tölvunörd bara af því að ég kann að kveikja á slíkri þá ætti ég kannski að segja ; meiri tölvunörd... man, ég er pirruð.. þetta var ekkert alltof góður dagur... ég fór í vinnuna, voða jolly... svo var ég 'lánuð' uppí korpuskóla.. damn.. hef ekki heyrt nice things about that place.. en það var svosem ekkert verra en í rimaskóla.. mér leið bara ekkert ofsalega vel.. ég var loksins farin að finna fyrir öryggi uppí tígrisbæ.. meina, þekki alla krakkana með nafni, líkar vel við starfsfólkið, veit hvar allt er (pretty much) osfrv, osfrv.. og mér líkar bara drulluvel.. en þarna kunni ég ekki á neitt, vissi ekkert og þorði eila ekki að gera neitt... reyndi bara að vera voða ósýnileg (which didn't work) og taldi niður sekúndurnar í að klukkan yrði fimm.. well then, better get some sleep...