fimmtudagur, nóvember 27, 2003
oh, btw.. freaky draumur... mig dreymdi frikka weiss.. (kúgast, kúgast) ég vil ekki hafa frikka weiss í draumunum mínum.. ekki sona allavega... brrr... anný dreymdi hann víst líka um daginn.. hvað er í gangi???
ég á víst að fara að snúa sólarhringnum við.. mér skilst að það sé bara almenn óánægja með þetta 4-4 dæmi... sem hentar mér samt vel... ég verð að segja að mér finnst þetta bara fínt.. skil ekki hvað fólk er að væla... aðlagið þið ykkar sólarhring bara að mínum sólarhring... en ég þarf nú víst að fara að finna mér vinnu.. er nú búin að skoða það aðeins og sona... ég hef bara hreinlega enga löngun til að baða gamalt fólk.. jafnvel fyrir peninga... ég hef heldur engan áhuga á að skemma þær örfáu heilasellur sem ég á eftir með því að handlanga hluti eftir kassa í eikkuri búð.. *bíb* *bíb* *bíb*... ómögulega takk... ég veit að ég má ekki láta sona.. má ekki vera sona 'picky'.. need money.. work-money-london... þannig verður það víst að vera... peningar vaxa ekki á trjám... en eru peningarnir ekki gerðir úr trjám... ja, ekki klinkið.... mikið vildi ég að ég ætti svo mikið af peningum að ég hreinlega vissi ekki hvað í fjandanum ég ætti að gera við þá alla... mér myndi kannski ekkert líða betur eða solis, ekkert vera neitt hamingjusamari, en það myndi auðvelda ýmislegt og þá gæti ég frekar einbeitt mér að því sem gerir mig hamingjusama.. yeah, i know, this is fucked up... ég veit samt nokkurn veginn hvað ég myndi gera ef ég ynni í lottói eða eikkað solis... eikkura brjálaða upphæð.. ég myndi borga upp íbúðina og laga hana alla.. helst kaupa íbúðina við hliðiná eða fyrir ofan eða neðan líka og sameina þær... múhaha... eða bara kaupa hús eikkurs staðar.. er eila ekki alveg búin að ákveða þann part... ég myndi senda alla fjölskylduna í heimsreisu (that better be a very large sum of money) eða hvað sem þau vildu.. myndi samt ekki láta frændur mína bara hafa peninginn, þeir myndu líklega kaupa róbóta í fjósið, nýja gröfu, nýjan leikfangatraktor og eikkað solis... reyndar væri það bara soldið sniðugt.. þeir hafa víst ofboðslega lítinn áhuga á heimsreisu.. það þýddi bara að óli þyrfti að pakka niður helling af súrmjólk og bönunum... hann getur nebbla ekki hugsað sér að borða útlandamatinn, eða það skilst mér... þau voru eikkurn tímann úti og á meðan konan hans og hluti krakkana sátu á veitingahúsi sat óli uppá herbergi og sötraði súrmjólk.. brilliant... bara brilliant... já, anyway.. hvert var ég komin... familían.. jamm og já.. svo myndi ég sjálf fara í eikkað ferðalag með vinum mínum... bara, where do ya wanna go guys.. ég myndi líka kaupa bíl.. nei, bíla!!! handa öllum!! eða mótorhjól.. jibbíjei.. ég myndi stofna eikkurs konar sjóð fyrir frændsystkini mín, fjármagna skóla og allt solis... geez.. this is a lot of money and i'm not done.... oh, ég myndi fara í eikkurs konar laser aðgerð til að losna loksins við örin af bakinu og hálsinum... þessi helvítis ör sem áttu að fara á ári en það var fyrir sex árum... ég myndi kannski líka fara í augnaðgerð, ef ég vissi að það væri alveg 300% safe... annars hef ég ekkert á móti linsunum þannig séð... used to them by now... já.. svo myndi ég gefa öllum sem mér þykir vænt um eikkura ákveðna upphæð.. í alvöru.. ég er ekkert að meina eikkurar milljónir eða solis.. kannski fimmhundruðkall á haus... neh, djók... ef ég væri eikkað drullurík þá myndi ég gefa gegt mikið að pening... til vina og fjölskyldu og líka eikkað sona góðgerðathing.. styrkja rannsóknir á lækningu við aids og alzheimers og parkinsons og allt solis... JÆJA, þetta er allt komið útí þvílíka vitleysu.. im out...
sunnudagur, nóvember 23, 2003

You are naturally born with a gift, whether it be
poetry, writing or song. You love beauty and
creativity, and usually are highly intelligent.
Others view you as mysterious and dreamy, yet
also bold since you hold firm in your beliefs.
What Type of Soul Do You Have ?
brought to you by Quizilla
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
hmmm... ég var í matarboði í kvöld og komst að því að familían mín les víst eikkað bloggið svo ég ætla aðeins að fara að ritskoða sjálfa mig... *íbs* ég er nú ekki að segja neitt merkilegt hérna... enda ekkert merkilegt að segja... ég ætlaði einmitt að fara að segja frá sottlu núna en held ég sleppi því.. gunni böggaði mig alveg nóg yfir matnum... (eða blöggaði eins og mér heyrðist hann kalla það) anyways.. nú ætla ég að vera bara góð og tala um hvað himininn er fallegur og hvað blóm eru yndisleg og solis... nema rósir.. ég þoli ekki rósir.. ekki koma með rósir nálægt mér... iss piss... anyway.. fann auglýsingu um au pair í london eftir áramót... it's a sign... i'm off!!
prufutaka í kvöld.. þetta var pain in the arse og mér leið gegt illa því hárið á mér sökkaði og allt var ómögulegt... ég ætla ekki að leika í þessari *ritskoðað* mynd.... býðst eikkur til að flytja með mér til london eftir áramót???? eða ekkert endilega london.. hvert sem er eila.. neinei, ég fer bara ein... take a chance.... eníveis... ætla ekki allir á muse?????? MUSE!!!! 10.des fólk!!!! farin að sofa... over and out...
þriðjudagur, nóvember 18, 2003
ég er gegt ömurlegur bloggari.. ætla að koma með smá upprifjun... við stella hlógum okkur nánast til dauða á matrix 3, hún var svooooo stupid... hmmm.... anný er að eyðileggja mig með því að draga mig á staði eins og amsterdam, gaukinn, glaumbar, kapital, felix og ég veit ekki hvað og hvað... the woman has to be stopped... ég var orðin svo pirruð á tónlistinni á felix að ég bara varð að fara, with or without anný.. sá dillon í hyllingum... * er hyllingar kannski með venjulegu i-i??? hillingar.. hyllingar... don't give a rats arse * anyways, jamm.. held það sé nokkuð öruggt að ég 'verði að taka mér frí í skólanum' *sís* og sé fram á að kveðja london... fékk sms frá stellu, sem btw kom þessari hugmynd að flytja þangað að mér... hún sagðist ætla að droppa eikkurum áfanga, klára eikkura en fara svo að vinna eftir áramót... me no happy!!! margrét björk þór!! við förum til london manneskja!! eða eikkurt... þó ekki væri nema færeyjar eða eikkað... i need a change of 'scenery' og ég hef ekki farið til útlanda síðan ég var fjögurra ára... og ég hef sagt það áður og segi það aftur... hvernig dettur fólki í hug að fara með fjögurra ára barn til landa eins og kýpur, egyptalands og ísrael.. nutz... friggin nutz.. og ég fékk ekki einu sinni að fara á bak úlfalda... dang u people!!! pluh.... jamm.. ég var að fá eikkað bréf... blablabla "áunnin réttindi til ellilífeyris"... eh??? im twenty years old for pete's sake... DARN.... þetter engin *ritskoðað* upprifjun... kannski þar sem það er ekkert til að rifja upp.. i don't have a friggin life u know.. unless u wanna know excactly the amount of alcahol i've consumed.. kjaftæði...nennessekki...
fimmtudagur, nóvember 13, 2003
gaman gaman.. i'm fire!!! auddað er ég eldur... jamm og já gott fólk... mér er sagt að ég sé ekki nógu dugleg að skrifa.. málið er bara að það er ekkert að gerast sem ég get skrifað um.. ég er að hugsa um að taka mér frí frá skólanum eina önn, hvort sem ég flyt til london eða ekki... ég þarf eila smá tíma til að átta mig á því hvað ég vil verða.. eikkurar sniðugar hugmyndir um hvað ég eigi að mennta mig í? hvað ég á að gera í framtíðinni? i dunno... það er bara eila svo margt sem mig langar að gera... alltof margt... ég get ekki ákveðið mig.. nennir eikkur að ákveða fyrir mig?? *grin*

Your element is Fire. Wild and free. Your emotions
lead you everywhere. You are a very passionate
person, though sometimes forceful and
destructive you have a goal in life, even if
that goal is just to make it another day. Fire
consumes and purifys, it also protects. There
is always caution with fire because once it is
started on something there is no telling how
much it can destroy. Fire people have the same
tendency when mad you could be a candle burning
but if someone tips you over...
What's your element
brought to you by Quizilla
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
if it makes u happy, then it can't be that bad.. if it makes u happy, then why r u so sad... ég var að heyra þetta lag eikkurs staðar og ég losna ekki við það... virkilega óþolandi... veit annars eikkur hver syngur þetta? puh, mér er eila alveg sama.. ................. .... ég var að ræða við nínu og erlu björk í dag og mér finnst þetta alls ekki sanngjarnt.. það er til hellingur af lögum um nínu, nokkur um erlu en ekki eitt einasta um elfu!!! why is that? er elfa eikkvað verra nafn?? ha? pluh... *single tear runs down cheek*......... sniff...
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
það er svona gott fólk... mig grunar að mér verði hent úr skólanum.. ef grunur minn reynist réttur þá stakk stella upp á því að við flyttum til englands.. vinna á bar.. lítil krappí íbúð og chilla í hálft ár eða svo.. finna út hvað við viljum gera 'þegar við verðum stórar'... sounds friggin good.. veriði blesssssssuuuuð... sjáumst næsta haust.. æi.. ég skil ekkert í mér... ég dýrka þennan skóla og hef alveg áhuga á því sem ég er að læra.. akkuru dett ég þá svona niður og missi úr tímum og allt fer í fokk?? hvað er málið?? too much beer??? vá.. það er svo langt síðan ég hef bloggað.. eða bara skrifað eikkvað yfirhöfuð að nú er ég að blaðra öllu mögulegu útúr mér... not gonna tell any secrets though.. i don't have any secrets but i know everyone else's secrets... ;) neinei, segi bara sona... blah... ég er gegt þreytt.. hættessu.. tók smá próf....

