sunnudagur, september 28, 2003

If today is the first day of the rest of your live, what the hell was yesterday?
jubb.. fór semsagt í bíó með stellu.. svo fór ég bara heim að chilla og var eila að vona að fyllerí dytti upp í hendurnar á mér.. og viti menn.. anný sendi sms og mín ákvað að labba niðrí bæ.. geez mar.. labba frá friggin kleppsveginum niðrí friggin bæ.. i must be mad... or an alchoholic... i do believe mad is the word we're looking for.. still... anyway, síðustu skrefin að celtic cross voru bara pain, mér var svo illt í fótunum.. skórnir eila gáfu sig á miðri leið.. var eila að spá í að brjótast inní skóbúð á leiðinni niður laugaveginn.. fann bara enga skó sem mér leist nógu vel á.. múahahaaha.. en þetta var tiltölulega ódýrt fyllerí.. þar sem ég er afar illa sofin eftir síðustu viku, hef voða lítið borðað undanfarna daga osfrv osfrv þá þurfti ég ekkert að drekka svo mikið... hef eila aldrei þurft jafn lítið... samt sem áður á ég ekki krónu núna.. búhú.. ég á bágt.. heyrðu jú, ég á tvær krónur inná stofuborði.. magnað... geez.. merkilegt að ég geti stjórnað fingrunm á mér en ég get samt eila ekki greint hvort þetta kemur allt rétt út.. gæti verið pínu fucked up.. leiðrétti það þá seinna.. bleble

laugardagur, september 27, 2003

þið segið það.. jújú... mikið rétt... einmitt... pluh.. mér leiðist... er reyndar á leiðinni í bíó með stellu.. á matchstick men með nicolas cage og sam rockwell.. massaflott blanda.. svo ætla ég að reyna að plata stellu aðeins niðrí bæ.. stella drekkur ekki og verður á bíl... how perfect is that... mig langar ekkert smá í bjór.. geez.. ég hef ekki farið niðrí bæ síðan... uuuuu.. man ekki svo langt aftur í tímann.. menningarnótt eða eikkvað.. búið að vera svo svakalega mikið að gera undanfarið.. skólinn nottla.. elska þennan skóla.. svoo gaman... en þetter samt soldið sjúkt.. mér finnst actually nokkuð gaman í grunnteikningu, fríhendisteikningu, efnisfræði osfrv.. svo var ball á miðvikudaginn.. hræðilegt.. fólkið í þessum skóla er ekkert smá vanþakklátt.. mar reynir eins og madman að gera eikkvað fyrir það, hafa eikkvað félagslíf en þau neita bara að taka þátt í því.. svo kvarta þau yfir að það sé alveg steindautt.. ómögulegt.. en miðvikudagurinn var alveg mad.. ég æddi um eins og brjálæðingur allan daginn og var svo að leka niður á ballinu og gafst hreinlega upp um eitt leytið þegar ég var hætt að sjá skýrt og gat engan veginn staðið í fæturna.. og ég var alveg edrú btw... þetta er bara búin að vera alveg ótrúlega löng vika... jæja.. ég nenni þessu ekki lengur... hætt! búið! bless!!

þriðjudagur, september 23, 2003

Chaos, panic and disorder - my work here is done.

miðvikudagur, september 17, 2003

Best way to prevent hangovers is to stay drunk.
jæja.. ég ætlaði nú bara að segja nokkur orð... jamm... bara allt gott að frétta sona mostly... gengur sosem ágætlega í skólanum.. hef misst aðeins úr vegna skemmtinefndarinnar en ég er samt ekkert mikið á eftir... ég hef reyndar þónokkrar áhyggjur af því hvað mér finnst gaman í grunnteikningu.. that really can't be good.. jæja.. svo eru leikæfingar byrjaðar og það er bara alveg endalaust skemmtilegt þó mar sé geeeeðveikt ryðgaður... en það kemur... jamm og já.. þetta teljast nú bara nokkuð mörg orð er það ekki?? jamm.. æfing eftir rétt rúman hálftíma... best að skipta um föt og solis.. fer varla í pilsi... neee...

sunnudagur, september 14, 2003

phew... ég hélt hreinlega að ég hefði fengið matareitrun eða eikkvað... ég hef aldrei fengið solis og veit ekkert hvernig það er en ég er búin að vera að drepast síðan á fimmtudag.. man reyndar ekkert hvað ég borðaði þá... og á fimmtudaginn fór ég austur, með rönku og egil memmér og á föstudaginn fórum við í réttir og svo á laugavatn á eikkurt stjórnunarnámskeið á vegum ff... það byrjaði klukkan hálf sjö á fös og við vorum að þangað til hálf tólf.. og við fengum þær upplýsingar, aðeins of seint, að á laugardeginum ætti að vera eikkvað gala kvöld... og ekkert okkar með neitt, varla föt til skipta... þannig að um hálf eitt fór ég af stað, í grenjandi rigningu, stormaðvörun og eikkvað og ég keyrði heim í sveitina, rústaði öllum fataskápum og fann eikkur föt en ekkert uber fínt.. svaf þar og vaknaði svo eldsnemma og keyrði alltif hratt til að ná á laugavatn klukkan hálf níu.. og við vorum að allan helvítis daginn... ég meina, þetta var ágætt, ég lærði heilmikið en þar sem ég var að deyja í maganum og bara með beinverki dauðans þá var þetta ekki my ideal weekend.. svo kom að galakvöldinu og iðnskólinn var gegt trashy á meðan flest allir aðrir voru í síðkjólum og jakkafötum og eikkvað... hóparnir áttu að vera með eikkur skemmtiatriði.. ég þraukaði í gegnum það en svo bara varð ég að fara.. ég hafði eila ekkert hugsað útí það fyrr en svo var eikkað lið þarna að tala um að það væru allir að verða veikir, hálsbólga og eikkur magakveisa og ég bara "fuck".. þannig að ég keyrði í bæinn með samviskubit dauðans yfir að yfirgefa crewið mitt... en mikið var ég samt fegin að komast heim.. og ég er enn að drepast í öllum líkamanum.. en það er eins gott að það fari að skána því ég hef alls engan tíma fyrir þetta.. ball á miðvikudaginn og sona... en nú er ég hreinlega að huxa um að fara að sofa eða eikkvað.. er ekkert smá þreytt..

fimmtudagur, september 11, 2003

jamm... magnaður andskoti.. hvernig breytir maður sentimetrum í fet? veist, blabla feet eða blabla inches?? *break* ........ *back from break* fann það... ég er semsagt rétt rúmlega 4 feet and 9 inches... damn, im short... orlando bloom er 5'11".... *another break* nei, þetter ekki rétt hjá mér... er ég 5'2"??? nema ég sé enn verri en ég hélt í stærðfræði þá er 5 feet ca 152 sm. þá vantar fjóra sentimetra uppá... nei, kræst... of flókið... íbs... get ekki... þoli ekki núllkommaeinnsjöáttafimmblablabla... anyway, getur eikkur reiknað þetta fyrir mig ef ég set upp töfluna með mælieiningunum?? ég er annaðhvort alltof léleg í stærðfræði (very possible) eða alltof drulluþreytt.. (sem er einnig mjög líklegt... my eyes really hurt from these contact lenses)
1 decimeter = 0,3281 foot.
1 meter = 3,2810 foot.
...........
1 inch = 2,5400 centimeters.
1 foot = 0,3048 meter.
ég veit að þetta er kannski gegt simple fyrir suma.. but not me... ég á reyndar alveg að geta þetta... bara ekki núna... zzzZZZzzzZzz

miðvikudagur, september 10, 2003

All my life I wanted to be someone. Guess I should have been more specific.

mánudagur, september 08, 2003

ég er þreytt.. á að vera löngu sofnuð til að geta mætt í efnisfræði klukkan átta, happy happy joy joy en ég er búin að vera að taka til.. helvítis pakk sem var að hanga hérna í gærkvöldi, making my life a living hell... nei! bara djók.. var með smá party í gær.. flest allt liðið mætti og skemmti sér vonandi ágætlega.. mér fannst þetta fínt.. nema ég var svo upptekin af því að tala og fylgjast með að ég gleymdi alveg bjórnum sem ég var með.. er það ekki ein af dauðasyndunum, að gleyma alkahólinu eða eikkvað?? ég drakk tvo bjóra.. og ekki einu sinni það.. týndi bjór númer tvö og fann hann bara áðan.. very sad.. jamm og já.. en ég er búin að taka til.. vaska upp, sópa gólfin, ganga frá þannig að mamma sér ekki að í raun 'tók ég til' með því að henda öllu drasli inn í herbergið hennar.. ja, reyndar er skápurinn inni hjá mér frekar stuffed.. held að ég verði bara að fara í skólann vafin í lak eða eikkvað, get eila ekki opnað skápinn til að finna föt.. hvað er ég að bulla.. fötin mín eru aldrei inní fataskápnum.. geez..

jamm.. mamma hringi áðan.. tékka á litlu stelpunni sinni.. hún lagði af stað á fjall í dag og var augljóslega búin að fá sér aðeins að drekka.. svo þarf hún að koma í bæinn í fyrramálið til að vinna og svo fer hún strax aftur heim í sveit til að leita að kindum, blindfull á hestbaki.. sound like fun, eh? þannig að ég verð ein heima þessa vikuna.. getur eikkur hringt í mig á morgnanna til að vekja mig.. mig grunar að ég eigi eftir að lenda í vandræðum með það... *íbs* svo eru réttir á föstudaginn.. þetta er fylleríis-vika dauðans.. þau eyða viku í að smala saman þessum fá rollum sem við eigum þarna uppí sveit, alltaf með pelann á sér, frá morgni til kvölds.. allir að bjóða öllum sopa af sínu.. eins og sona vínsmökkunarklúbbur eða eikkvað.. svo er réttardagurinn þar sem allir fara á fætur klukkan fimm.. it may be hard to believe en ég hef vakanð alveg óendanlega oft í þetta.. jamm, það fara semsagt allir á fætur klukkan fimm, reka kindurnar það sem eftir er af leiðinni niðrí réttir og það er drukkið allan tímann.. í réttunum eru það í raun börnin sem draga allar kindurnar, fá að leika sér í ródeó, á meðan eldra fólkið drekkur sitt og annarra vín.. jamm, þetta er óskaplega skemmtilegt.. get ekki beðið.. vona bara að veðrið verði jafn gott og síðast.. :)

jæja, rúmið kallar...

föstudagur, september 05, 2003

ég er orðin þreytt á því að leyfa öllum að vaða yfir mig og koma illa fram við mig.. ég á erfitt með að svara fyrir mig og þarmeð getur fólk eila sagt hvað sem er og komist upp með það.. no more... im gonna stand up for myself.. im gonna try anyway..

miðvikudagur, september 03, 2003

668: The neighbour of the Beast.

mánudagur, september 01, 2003

jamm og já...... var í sveitinni um helgina... fór snemma á föstudag, kom við í hveragerði og náði í jón snorra og jökul... voða þægir og góðir.. skilaði þeim svo fyrr í kvöld.. nonni veikur og jökull uppfullur af sykri... það er skylda mín sem föðursystir að spilla drengjunum... leyfa þeim að hlaupa um á stuttermabolum og grafa sig í sandi og mold eikkurs staðar.. borða þegar þeir vilja, það sem þeir vilja og leyfa þeim svo að fara að sofa þegar þeim hentar... reyndar var þetta alls ekki solis... þeir reyndar hlupu um á stuttermabolum í ógeðslegum hita.. þegar kvöldaði var þeim skipað í peysur.. og þeim var harðbannað að fara nálægt nokkru sem mögulega gæti verið hættulegt.. eins og haughúsið.. þeir eru líka litlir snillingar og vita vel hvað þeir mega og mega ekki.. svo borðuðu þeir það sem var sett fyrir framan þá (stundum það sem var sett fyrir framan aðra líka.. græðgin) og eftir öll hlaupin og hreina loftið í sveitinni voru þeir dauðþreyttir og komnir í rúmið um níu... ég sver það, þeir eru englar... get alls ekki skilið hvernig það getur staðist hvað þeir eru góðir miðað við hver sá um uppeldið... neinei, veigar er góður pabbi... *sís* ég má ekki móðga bróður minn núna þegar hann er kominn með pirates í tölvuna... svo er síminn sem hann lét mig fá alveg að deyja... *sís* einnig er eikkvað fokk í tölvunni.. held að ég hafi gert eikkvað.. gott að eiga bróður sem er tölvunörd... smá mínus að hafa hann í hveragerði svo mar getur ekki hringt og hann skroppið í heimsókn til að laga eikkvað í tölvunni eftir að mar hefur verið að gera eikkvað miður sniðugt... sem ég er alltaf að gera... ég þarf að læra eikkvað á tölvur... þetta gengur ekki... *sís* jæja, skóli í fyrramálið... efnisfræði klukkan átta... lovely... hei já... var í bíó með erlu björk.. fórum á sweet sixteen í háskólabíói.. breskir dagar eða eikkað solis... alveg ágætis mynd bara... jájá, ansi góð.. mæli alveg með henni... well, ta-ta...