ég á víst að fara að snúa sólarhringnum við.. mér skilst að það sé bara almenn óánægja með þetta 4-4 dæmi... sem hentar mér samt vel... ég verð að segja að mér finnst þetta bara fínt.. skil ekki hvað fólk er að væla... aðlagið þið ykkar sólarhring bara að mínum sólarhring... en ég þarf nú víst að fara að finna mér vinnu.. er nú búin að skoða það aðeins og sona... ég hef bara hreinlega enga löngun til að baða gamalt fólk.. jafnvel fyrir peninga... ég hef heldur engan áhuga á að skemma þær örfáu heilasellur sem ég á eftir með því að handlanga hluti eftir kassa í eikkuri búð.. *bíb* *bíb* *bíb*... ómögulega takk... ég veit að ég má ekki láta sona.. má ekki vera sona 'picky'.. need money.. work-money-london... þannig verður það víst að vera... peningar vaxa ekki á trjám... en eru peningarnir ekki gerðir úr trjám... ja, ekki klinkið.... mikið vildi ég að ég ætti svo mikið af peningum að ég hreinlega vissi ekki hvað í fjandanum ég ætti að gera við þá alla... mér myndi kannski ekkert líða betur eða solis, ekkert vera neitt hamingjusamari, en það myndi auðvelda ýmislegt og þá gæti ég frekar einbeitt mér að því sem gerir mig hamingjusama.. yeah, i know, this is fucked up... ég veit samt nokkurn veginn hvað ég myndi gera ef ég ynni í lottói eða eikkað solis... eikkura brjálaða upphæð.. ég myndi borga upp íbúðina og laga hana alla.. helst kaupa íbúðina við hliðiná eða fyrir ofan eða neðan líka og sameina þær... múhaha... eða bara kaupa hús eikkurs staðar.. er eila ekki alveg búin að ákveða þann part... ég myndi senda alla fjölskylduna í heimsreisu (that better be a very large sum of money) eða hvað sem þau vildu.. myndi samt ekki láta frændur mína bara hafa peninginn, þeir myndu líklega kaupa róbóta í fjósið, nýja gröfu, nýjan leikfangatraktor og eikkað solis... reyndar væri það bara soldið sniðugt.. þeir hafa víst ofboðslega lítinn áhuga á heimsreisu.. það þýddi bara að óli þyrfti að pakka niður helling af súrmjólk og bönunum... hann getur nebbla ekki hugsað sér að borða útlandamatinn, eða það skilst mér... þau voru eikkurn tímann úti og á meðan konan hans og hluti krakkana sátu á veitingahúsi sat óli uppá herbergi og sötraði súrmjólk.. brilliant... bara brilliant... já, anyway.. hvert var ég komin... familían.. jamm og já.. svo myndi ég sjálf fara í eikkað ferðalag með vinum mínum... bara, where do ya wanna go guys.. ég myndi líka kaupa bíl.. nei, bíla!!! handa öllum!! eða mótorhjól.. jibbíjei.. ég myndi stofna eikkurs konar sjóð fyrir frændsystkini mín, fjármagna skóla og allt solis... geez.. this is a lot of money and i'm not done.... oh, ég myndi fara í eikkurs konar laser aðgerð til að losna loksins við örin af bakinu og hálsinum... þessi helvítis ör sem áttu að fara á ári en það var fyrir sex árum... ég myndi kannski líka fara í augnaðgerð, ef ég vissi að það væri alveg 300% safe... annars hef ég ekkert á móti linsunum þannig séð... used to them by now... já.. svo myndi ég gefa öllum sem mér þykir vænt um eikkura ákveðna upphæð.. í alvöru.. ég er ekkert að meina eikkurar milljónir eða solis.. kannski fimmhundruðkall á haus... neh, djók... ef ég væri eikkað drullurík þá myndi ég gefa gegt mikið að pening... til vina og fjölskyldu og líka eikkað sona góðgerðathing.. styrkja rannsóknir á lækningu við aids og alzheimers og parkinsons og allt solis... JÆJA, þetta er allt komið útí þvílíka vitleysu.. im out...
fimmtudagur, nóvember 27, 2003
Um mig
i don't like roses.. they're boring.. i don't like winnie the pooh either.. or any of his gang..
Previous Posts
- You are naturally born with a gift, whether it bep...
- hmmm... ég var í matarboði í kvöld og komst að því...
- prufutaka í kvöld.. þetta var pain in the arse og ...
- ég er gegt ömurlegur bloggari.. ætla að koma með s...
- gaman gaman.. i'm fire!!! auddað er ég eldur... ja...
- Your element is Fire. Wild and free. Your emotions...
- if it makes u happy, then it can't be that bad.. i...
- það er svona gott fólk... mig grunar að mér verði ...
- whhhhhyyyyy???? why me? this is just not right... ...
- heido.. bara smá.. þaddna.. ég er hætt að nota hot...


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim