laugardagur, október 04, 2003

það reynir alveg ofboðslega á líkamann að hósta nánast stanslaust í tvo sólarhringa.. going on third.. or is it fourth.. kinda lost track of time.. held samt að það sé ennþá föstudagur.. annars breytir voða litlu hvaða dagur er.. ekki eins og ég sé á leiðinni eikkurt.. má ekkert fara út.. má ekki einu sinni opna glugga... ég er með friggin 39 stiga hita, beinverki dauðans, kvef og hálsbólgu og það litla sem ég hef borðað síðustu daga hefur farið beint í klósettið.. eða þessa myndarlegu bláu fötu sem fylgir mér um íbúðina.. jæja.. ég er að huxa um að reyna að sofa aðeins til tilbreytingar... það hefur eila ekki mikið farið fyrir svefni á þessu heimili undanfarið.. mig grunar að nágrannarnir hafi ekki sofið mikið heldur.. lætin í mér hafa verið svo mikil að mamma stakk af.. (actually she does that every weekend but....) anyway.. ætla að skríða uppí rúm með bláu fötuna mína... erað huxa um að finna eikkvað gott nafn á hana...