þriðjudagur, október 07, 2003

50 leiðir til að hafa gaman af lyftuferð.. (hehe.. það er lyfta í blokkinni minni....)

1. Hermdu eftir kappakstursbíl í hvert skipti sem einhver kemur inn í lyftuna. Hermdu svo eftir sírenum þegar einhver fer út úr henni.

2. Snýttu þér og sýndu hinum í lyftunni vasaklútinn.

3. Grettu þig um leið og þú lemur þig í höfuðið. Muldraðu svo: "Æ, þegiði þarna inni. ÞEGIÐI!"

4. Reyndu ad selja einhverjum smákökur í lyftunni.

5. Vaggaðu þér í takt vid lyftuna. Láttu þig svo rekast í vegginn og hnígðu á gólfið.

6. Rakaðu þig.

7.
Opnaðu rifu á skjalatöskuna þína eða handtösku, kíktu þar inn og hvíslaðu nægilega hátt til ad hinir heyri: "Ertu med nóg loft þarna inni?"

8. Stattu þögul(l) og hreyfingarlaus í horni lyftunnar með andlitið upp að vegg.

9.
Þegar lyftan er að nema staðar á hæðinni þar sem þú ætlar út, taktu þá æðiskast og reyndu af alefli ad opna dyrnar með höndunum. Vertu svo vandræðalegur á svipinn þegar dyrnar opnast af sjálfu sér.

10.
Hallaðu þér upp að næsta manni eda konu og hvíslaðu: "Bókasafnslöggan er á leiðinni!"

11. Heilsaðu öllum innilega med handabandi sem koma inn í lyftuna. Biddu þá um ad kalla þig Aðmírál.

12. Klóraðu þér viðstöðulaust og hóstaðu ofsalega á meðan. Geiflaðu svo vörunum og láttu sem ad þú sért að umbreytast í apa.

13.
Gerðu jógaæfingar.

14. Starðu á einhvern í lyftunni, glottu fáránlega og segdu svo hátt: "Ég er í nýjum sokkum!"

15.
Dreifðu áróðursbæklingum frá Vottum Jehóva.

16. Mjálmaðu af og til. Geltu svo illilega og leiktu kött sem verið er ad murka líftóruna úr.

17. Segðu hinum farþegunum ad þú þorir að veðja ad þú komir heilli krónu fyrir inní nefinu á þér.

18. Grettu þig og muldraðu í hálfum hljóðum: "Ah, mér er svo mál, mér er svo mál!" Svo skaltu stynja, líta vandrædalega í kringum þig og segja: "Úps!"

19. Sýndu hinum farþegunum sár sem þú hefur fengið og spurðu þá hvort þeir haldi ad það sé nokkuð byrjað ad grafa í pví.

20. Syngdu "það er leikur að læra" á meðan þú ýtir stjórnlaust á takkana.

21. Æptu "í fallhlífarnar!" í hvert skipti sem lyftan fer niður á við.

22. Vertu med kælitösku sem á stendur stórum stöfum: "Mannshöfuð".

23. Starðu á einhvern í lyftunni í smá stund, og segðu síðan: "þú ert einn af ÞEIM!" Færðu þig svo eins langt frá viðkomandi og þú getur.

24. Þegar lyftan fer upp, taktu þá fram blokkflautu og spilaðu sálminn "Hærra, minn Guð, til þín".

25.
Ropaðu. Segðu síðan: "Ahhh...þetta var gott!"

26. Vertu með leikbrúðu og spurðu farþegana "með búktali" hvort þú megir ýta á takkana fyrir þá.

27.
Æddu inn í lyftuna rennandi blaut(ur) í baðslopp og med handklæði um höfuðið. Hristu höfuðið og muldradu eitthvað um það að eiginkonur/eiginmenn þurfi alltaf ad koma á versta tíma.

28. Reyndu að fá hitt fólkið til ad syngja með þér "Meistari Jakob" í keðjusöng.

29.
Þegar þögn ríkir í lyftunni, líttu þá í kringum þig og spurdu einhvern: "Var þetta bíp-tækid þitt?"

30. Segðu "Ding!" á hverri hæð.

31. Syngdu hástöfum. Berðu þér svo á brjóst og líktu eftir þokulúðri.

32. Segðu: "Hvernig ætli þessi virki?" og ýttu á rauða hnappinn.

33. Komdu með hlustunarpípu. Hlustaðu á veggi lyftunnar.

34. Teiknaðu ferhyrning med krít á lyftugólfið. Tilkynntu hinum ad innan hans sé "þitt svæði".

35. Komdu med stól.

36. Fáðu þér bita af samloku og segðu svo vid einhvern í lyftunni: "Vi´tu sjá hva' é e me' í mu''i' um á mé'?"

37. Blástu sápukúlur.

38. Segðu með djöfullegri röddu: "Grrr! Betri líkama! Ég verd ad finna mér betri líkama!"

39. Vertu med teppi og haltu daudahaldi í það. Breiddu það svo yfir höfuð þitt þegar hinir horfa á þig.

40. Hermdu eftir sprengju í hvert sinn sem einhver ytir á takka.

41. Vertu med sólgleraugu sem á stendur "Röntgengleraugu". Horfdu svo stíft á fólkid í lyftunni og glottu dónalega. Blístraðu.

42. Starðu á þumalputtann á þér og segðu: "Svei mér þá... hann er að stækka."

43. Ef einhver kemur óvart við þig, láttu sem þér bregði ofboðslega og öskraðu af öllum lífs og sálarkröftum: "Snertu mig ekki! Snertu mig ekki!"

44. Komdu med vatnsbyssu og sprautadu á skó hinna í lyftunni.

45. Burstaðu ósynilegar pöddur af handleggjum þínum og gargaðu: "Ógeð! Ógeð! Takið þessi ógeð af mér!"

46. Hlæðu gedveikislega í nokkrar sekúndur. Stoppaðu svo skyndilega og horfðu á hitt fólkid í lyftunni eins og það sé eitthvað skrýtið.

47.
Taktu upp merkipenna og teiknaðu skripamyndir af hinum farþegunum á lyftuveggina.

48. Þegar lyftan fer upp, hoppadu þá eins hátt og þú getur. Lentu svo med miklum dynk. Endurtaktu þetta nokkrum sinnum og öskradu: "Niður! Fjandinn hafi það, ég sagdi NIÐUR!"

49. Skjóttu upp kryppu í einu horninu og urraðu ógnandi á þá sem koma inn í lyftuna.

50. Fitjaðu upp á nefið og þefaðu út í loftid nokkrum sinnum. Lyktaðu svo varlega af manneskjunni sem stendur næst þér. Grettu þig síðan og færðu þig eins langt frá og þú getur.

Skemmtið ykkur vel....