mánudagur, september 08, 2003

ég er þreytt.. á að vera löngu sofnuð til að geta mætt í efnisfræði klukkan átta, happy happy joy joy en ég er búin að vera að taka til.. helvítis pakk sem var að hanga hérna í gærkvöldi, making my life a living hell... nei! bara djók.. var með smá party í gær.. flest allt liðið mætti og skemmti sér vonandi ágætlega.. mér fannst þetta fínt.. nema ég var svo upptekin af því að tala og fylgjast með að ég gleymdi alveg bjórnum sem ég var með.. er það ekki ein af dauðasyndunum, að gleyma alkahólinu eða eikkvað?? ég drakk tvo bjóra.. og ekki einu sinni það.. týndi bjór númer tvö og fann hann bara áðan.. very sad.. jamm og já.. en ég er búin að taka til.. vaska upp, sópa gólfin, ganga frá þannig að mamma sér ekki að í raun 'tók ég til' með því að henda öllu drasli inn í herbergið hennar.. ja, reyndar er skápurinn inni hjá mér frekar stuffed.. held að ég verði bara að fara í skólann vafin í lak eða eikkvað, get eila ekki opnað skápinn til að finna föt.. hvað er ég að bulla.. fötin mín eru aldrei inní fataskápnum.. geez..

jamm.. mamma hringi áðan.. tékka á litlu stelpunni sinni.. hún lagði af stað á fjall í dag og var augljóslega búin að fá sér aðeins að drekka.. svo þarf hún að koma í bæinn í fyrramálið til að vinna og svo fer hún strax aftur heim í sveit til að leita að kindum, blindfull á hestbaki.. sound like fun, eh? þannig að ég verð ein heima þessa vikuna.. getur eikkur hringt í mig á morgnanna til að vekja mig.. mig grunar að ég eigi eftir að lenda í vandræðum með það... *íbs* svo eru réttir á föstudaginn.. þetta er fylleríis-vika dauðans.. þau eyða viku í að smala saman þessum fá rollum sem við eigum þarna uppí sveit, alltaf með pelann á sér, frá morgni til kvölds.. allir að bjóða öllum sopa af sínu.. eins og sona vínsmökkunarklúbbur eða eikkvað.. svo er réttardagurinn þar sem allir fara á fætur klukkan fimm.. it may be hard to believe en ég hef vakanð alveg óendanlega oft í þetta.. jamm, það fara semsagt allir á fætur klukkan fimm, reka kindurnar það sem eftir er af leiðinni niðrí réttir og það er drukkið allan tímann.. í réttunum eru það í raun börnin sem draga allar kindurnar, fá að leika sér í ródeó, á meðan eldra fólkið drekkur sitt og annarra vín.. jamm, þetta er óskaplega skemmtilegt.. get ekki beðið.. vona bara að veðrið verði jafn gott og síðast.. :)

jæja, rúmið kallar...