sunnudagur, júlí 27, 2003

gleymdi alveg að fara að sofa... er samt búin að hengja legolas uppá hurðina inní herbergi.. spurning hvort ég þurfi að taka hann aftur niður á morgun og fara með hann austur... meina, ekki get ég skilið hann einan eftir í bænum...??? jæja.. þetta gengur ekki lengur.. verð að sofa.. og í þetta skiptið held ég að ég taki linsurnar úr... ...... chili pipar er snilld.. eða bara allt sterkt.. matur er óætur nema hann brenni mann að innan.. byrjaði allt á kýpur árið 1987... eða 88... æji, ég var allavega 4 ára þegar ég fór út og 5 þegar ég kom til baka.. það er svoooo súrt að muna svona lítið eftir þessu.. pæliði að fara til kýpur, egyptalands, ísrael og lux og muna eila ekkert eftir því... fjandinn... bara brot og brot og það sem mér hefur verið sagt... man eftir þessum blessaða sterka kjúklingi... man eftir pýramídunum sem ég þrái að sjá aftur.. og úlfaldarnir... man eftir maurunum í eldhúsinu, skríðandi yfir spælda eggið sem var planið að ég borðaði.. man eftir grátmúrnum, mjög vaguely... scary... man eftir vinunum sem ég eignaðist en gat nottla ekkert talað við.. aukaatriði.. man eftir vini mínum á barnum.. geez, 4 ára og strax farin að hanga á barnum... æji, ég er hætt þessu... memory lane...