laugardagur, júlí 26, 2003

ammilið mitt var æði... besta ammili sögunnar.. ég fékk bara brilliant gjafir!!!! fyrsta gjöfin var ilmvatn, frá mömmu.. vantaði einmitt.. svo kom ég við hjá bróður mínum á leiðinni austur í gær og hann rétti mér blað.. maðurinn gaf mér lén!! ég á www.elfa.is... pæliðíessu... en afþví að ég kann ekki neitt og solis þá tengdi veigar þessa síðu við elfa.is svo ef mar pikkar það inn þá kemur bara þessi.. ennþá... smátt og smátt skal það breytast.. ég var bara orðlaus.. meina, það gerist en er kannski ekkert voða algengt að ég hafi ekkert að segja... mér bara lá við gráti.. TAKK VEIGAR.. HELD ÞÚ SÉRT BESTI BRÓÐIR Í HEIMI !!!! hef nottla ekkert að miða við eeeeen.... svo opnuðum við pakka fyrir austan þegar við vorum búin að borða.. frá erlu björk og unnsteini fékk ég risastórt sólblóm sem er uppáhaldsblómið mitt í öllum heiminum.. um það var vafin sería, gegt cool.. og blómið var í stígvéli.. massaflott.. það verður máski að vera þar í smá tíma því ég á ekki blómapott... frá adda, helgu, ragga og iðu fékk ég plöntu sem ég man ekki hvað heitir.. ef þau yfirleitt sögðu mér það... alveg ótrúlega flott.. ef mar snertir hana þá lokar hún sér.. blöðin falla saman.. við stóðum og lékum okkur aðeins að þessu í dag.. erla maría bjó til armband/úr.. alveg gegt.. svart og rautt, í sömu línu og fötin sem hún gerði fyrir sýninguna í síðustu viku.. 'man made beauty'... melkorka gaf mér risaplakat af legolas.. van gogh er semsagt á leiðinni niður af veggnum fyrir ofan rúmið mitt.. arna og gugga gáfu mér sápukúlur og rauðvínsflösku.. two things i love most in this world, sápukúlur og alkahól.. múhaha... bróðir mömmu og fjölskylda gáfu mér 5000 kall.. þau skynjuðu fjárhagserfiðleika mína... og systir mömmu og familía gáfu mér nu skin vörur og tösku.. vantaði akkúrat tösku.. perfect.. önnur systir mömmu borgaði veisluna.. vissi það reyndar ekki fyrr en áðan og er því ekki búin að kyssa hana og þakka fyrir.. hmmm... við tjölduðum eftir matinn og hófum bjórdósir/flöskur á loft... sungið og skemmt sér fram eftir kvöldi.. fórum að leika okkur í tröllapoppinu í sveitinni.. nýtt orð í mínum orðaforða.. svo lærði ég annað.. við vorum með tjald sem var með himni og fortjaldi sem var ítrekað kallað 'forhúð' og nú er það bara almennt heitið.. hitt tjaldið var ekki með forhúð og kallast því gyðingur.. við sváfum sjö í forhúðartjaldinu, ég, erlurnar, gugga, arna, iða og raggi og svo var unnsteinn einn í gyðingnum.. fór sko að sofa á undan og við vildum ekki ónáða hann.. svo fórum við á hestbak í dag í æðislegu veðri.. vá hvað ég hef saknað þessa.. ef ég hefði ekki verið með fullt af óvönu fólki þá hefði ég hent hjálminum í burtu, rifið hnakkinn af og hleypt hestinum eikkvað fram tún.. noro lim... neh, þetta var gegt gaman og ég held að allir hafi verið mjög ánægðir með þetta.. allavega var ég það.. nema við söknuðum þeirra sem ekki komust, rönku, nínu, gumma og vigdísar.. svo komu eva og kristrún, vinkonur að austan, ekki.. ég var inneignarlaus þannig ég gat ekki tékkað á þeim.. og það var algjört sambandsleysi akkúrat þar sem við tjölduðum.. en þetta var eins og ég sagði frábært.. nokkuð gott veður, mjög góðir vinir og allt fljótandi í alkahóli... luv u guys... ;* ég hef aldrei fengið jafn æðislegar ammilisgjafir, allar eikkurn veginn útpældar og viðeigandi og ég uber ánægð.. ég hef ákveðið að leggja mig núna.. en fyrst.. legolas uppá vegg!!! ;) og ég þarf eila sárlega að komast í sturtu... svo get ég látið undan þreytu dauðans.. eða... á ég að fara niðrí bæ og nota skilríkin mín.. verst bara að þar sem ég er yfirleitt hef ég bara aldrei verið beðin um skilríki.. sýni þau bara samt... hrumph!! ble beibís... hugs and kisses to all!!!!!!!!!