laugardagur, maí 17, 2003

ég var úti með erlunum.. fórum í ljósmyndaleiðangur... afar áhugavert.. erla maría er mesti perri í heimi... sést ekki á henni, virkar voða saklaus lítil stúlka en, my god, það sem gengur á í hausnum á henni... brrr..
við hlógum svoooo mikið, að hlutum sem hinn almenni íslendingur myndi ekki finnast neitt fyndið.. hlógum bara að engu... ég á svo eftir að fá six-pack eftir alla áreynsluna... m.a. spáðum við í það hvað við fengjum mörg stig fyrir að keyra á þennan eða hinn.. eikkvað sem upprunið er frá erlu perra og halli bróður hennar..
við ákváðum að labba laugarann með myndavélina og þykjast vera erlendir tískuljósmyndarar og eikkvað.. international fashion.. ákváðum nöfn og allt.. erla björk var pat buchanan, erla perri var isabelle lecross og ég var morgan mckenzie.. við ætluðum að labba um, við pat með breskum hreim og perrinn að bulla á frönsku og fá að taka hræðilegar myndir af pissfullu fólki undir því yfirskini að við værum að leita að nýjum andlitum.. drullugóð hugmynd en komst aldrei í framkvæmd því bærinn var fullur af fólki sem við könnuðumst við..
það var alveg hellingur sem ég ætlaði að skrifa og sumt af því frekar ósiðlegt en ég hreinlega hef ekki orku í það núna en þó verð ég að segja eitt sem hún erla björk sagði okkur..
umrædd erla vinnur í lúgusjoppu í sveitarfélagi með póstnúmerið 270 og einn daginn kom þar að kona og kvartaði eikkvað undan verðinu á kóki.. alltílæ, erla hélt kúlinu og sagðist lítið geta gert í því, kellingin fór en kom svo stuttu seinna aftur og í þetta skiptið í engum buxum.. þetta væri svosem ekkert merkilegt nema konan var víst e-ð um 300 kíló að sögn erlu.. not a pretty sight... jæja, eins og ég sagði finnst average joe þetta kannski ekkert fyndið en erla, erla og elfa eru ansi merkilegar saman... 3e..
me be gone..